Ægir - 01.03.1985, Blaðsíða 14
Saltfiskframleiðslan
1984
Sigurður Haraldsson:
fiskverkun, en framleiðendur
lögðu vaxandi áherslu á þá
verkun eftir því sem á árið leið.
Það er athyglisvert að rúm
9.000 tonn eða nærri fjórðungur
framleiðslunnar á síðasta ári voru
verkuð og flutt út sem tandurfisk-
ur.
Gæði framleiðslunnar bötn-
uðu verulega á síðasta ári eftir að
hafa verið í lægð í um tveggja ára
skeið. Um 62% af framleiðslu
blautsaltaðs þorsks féllu í 1. og 2.
flokk árið 1984, um 34% í 3-
4. flokk og 4% í 5. flokk, en þe5S
ber að gæta að aðeins óverule?
magn af þorski var verkað í skrei
á síðasta ári. Hin nýja tand°r'
verkun hefur tvímælala0-1
stuðlað að þessum árang0'
sömuleiðis aukinn flutning°r
fisks með brettum og tilfeersla
eftirlits og úttektar á saltfiski ti
5. Í.F. frá Ríkismati sjávarafurða-
Útflutningur
Útflutningur saltfisks á síðasta
ári varð 42.040 tonn að ve rbm&'
c.i.f. um 2.800 millj. kr.
Eftirfarandi tafla sýnir heildar'
útflutninginn á árinu 1984
1982 og 1983 til samanburðan
skipt eftir markaðslöndum
verkun:
Framleiðsla saltfisks varð um
40.000 tonn á árinu 1984 eða
8.000 tonnum minni en 1983.
Árleg meðalframleiðsla saltfisks
síðustu 12 ár er 46.600 tonn eins
og fram kemur á meðfylgjandi
mynd er sýnir árlega framleiðslu
frá 1973.
Samdrátturinn í framleiðslunni
varð einkum á vetrarvertíðinni,
enda dróst afli báta mjög saman.
Framan af ári varð samdrátturinn
í framleiðslunni meiri en nam
samdrætti í bátaafla og réð þar
mestu að afkomuhorfur í saltfisk-
verkun voru mun verri en í fryst-
ingu. Þegar á sumarið leið jókst
söltun jafnt og þétt og varð fram-
leiðslan sl. haust um þrefalt meiri
en venjulega á þessum árstíma.
Á þessu eru nokkrar skýringar og
þær helstar, að nokkur verð-
hækkun fékkst á mörkuðunum
seinni hluta ársins, allmikil
birgðasöfnun var af frystingu en
afskipanir á saltfiski gengu mjög
greiðlega og var nánast engin
birgðasöfnun af saltfiski ef ufsi er
undanskilinn. Síðast en ekki síst
er skýringuna að finna í tandur-
1984 1983 1982
tonn tonn tonn
Blautverkaður fiskur
Bretland 1.005 1.013 287
Frakkland 2.358 2.433 1.693
Grikkland 3.135 3.947 4.178
Ítalía 2.937 3.323 3.477
Portúgal 18.057 24.523 36.704
Spánn 9.131 8.148 8.740
Önnur lönd 27 30 32
36.650 43.417 55.111
Saltfiskflök
Ítalía 513 109 231
Spánn 422 427 250
V-Þýskaland 1.575 1.246 641
Önnur lönd 268 143 184
2.778 1.925 1.306
Þurrfiskur
Brasilía 937 1.354 382
Bretland 280 0 0
Kongó 175 0 0
Frakkland 542 898 654
Panama . : 28 95 192
Zaire 214 302 175
V-Þýskaland 374 0 0
Önnur lönd 62 61 20
Samtals: 2.612 2.710 1.423
Útflutningur alls: 42.040 48.052 57.840
62-ÆGIR