Ægir - 01.03.1985, Qupperneq 30
Theódór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri:
Framleiðsla og sala
lagmetis S.L. 1984
Útflutningur á vegum Sölu-
stofnunar lagmetis á árinu 1984
jókst frá árinu áður. Út voru flutt
tæplega 3000 nettó tonn, sem var
um 9% aukningfráárinu 1983 og
er verðmætishækkunin 26% frá
fyrra ári í íslenskum krónum.
Alls voru fluttar út 18 tegundir
lagmetis, sem voru framleiddar í
8 verksmiðjum. Nokkrar nýjar
tegundir komu til útflutnings á
árinu og eru það smokkfiskur,
reyktur silungur, pöstur o.fl.
Heildarútflutningur ársins
1984 er sá mesti, sem verið hefur
frá upphafi S.L. Árið 1977 flutti
S.L. út 1300 nettó tonn og hefur
útflutningurinn því rúmlega tvö-
faldast síðan, en verulegur stíg-
andi ísölunni hófstþóekkifyrren
á árunum 1981 og 1982, þegar
skriður komst á sölu á niðursoð-
inni rækju. í áætlun fyrir árið
1985 er gert ráð fyrir að selja
a.m.k. 4100 nettó tonn og virðist
það mat raunhæft eftir aðstæðum
nú.
Talsvert hefur verið unnið að
þróun nýrra vörutegunda hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og lagmetisiðjunum, einkum í
þeim verksmiðjum, sem hafa
matvælafræðinga í þjónustu
sinni. Áhugi er hjá framleið-
endum á því að ráða matvæla-
fræðinga til starfa, enda koma
helst nýþróaðar vörur frá þeim,
sem fært geta sér í nyt þekkingu
þeirra, inni í verksmiðjunum
sjálfum. ___________________
Á árinu 1983 varð mikil aukn-
ing í sölu á niðursoðinni rækju
einkum til Þýskalands, og hefur
sá markaður gefið góða raun,
enda er rækja nú efst á blaði
7«vy A
z*
/.
útflutts lagmetis frá íslandi, en
röðun helstu lagmetistegund-
anna er nú sem hér segir, saman-
borið við árið 1983:
1984 1983
% %
Rækja................... 46 43
Gaffalbitar............. 25 26
Reykt síldarflök (kippers) 11 15
Kavíar................... 9 7
Þorskalifur ............. 5 4
Smokkfiskur.............. 2 0
Aðrar tegundir .......... 2 5
100 100
Lagmetisiðjurnar leggja nu
mikla áherslu á að auka vélakost
sinn til meiri sjálfvirkni og hefur
talsvert áunnist á því sviði og eru
sumar verksmiðjurnar framarlega
í vinnuhagræðingu og hafa fuN'
komnum vélakosti á að skipa-
Virðist almennt mikill hugur 1
mönnum að þróa vinnubrögð og
vélakost, enda skilyrði fyrirfrarn-
gangi atvinnugreinarinnar.
Útflutningur lagmetisins skipt'
istsvoáhinýmsu markaðssvæði:
'ic '7? 7?79% Vi w W W
Súlurit um þróun heildarútflutnings frá 1976 - 7 984 í tonnum.
A*
78-ÆGIR