Ægir - 01.03.1985, Side 52
náttúra íslands
BÓKAFREGN
Ný bók um íslenska fiska:
Gunnar Jónsson:
íslenskir fiskar
519 bls. Fjölvaútgáfan 1983
Það er fu 11 ástæða til þess að
vekja á því athygli í „Ægi", að í
desember 1983 kom út mikil og
vönduð bók um íslenska fiska frá
hendi Fjölvaútgáfunnar eftir dr.
Gunnar Jónsson fiskifræðing. Tii
eru reyndar nokkrar litlar bækur
um fiska á íslensku frá síðustu
árum, til dæmis Fiskabók AB frá
1968, en þessar bækur munu nú
vera uppseldar eða iIIfáanlegar
og helst til á söfnum til aðgangs
fyrir almenning. Bók dr. Bjarna
Sæmundssonar um fiskana kom
út fyrir 58 árum, en var endurút-
gefin Ijósrituð 1957 með vitbæti
eftir Jón Jónsson fiskifræðing. Er
hún löngu ófáanleg. Það var því
ekki um auðugan garð að gresja í
þessu efni, erdr. Gunnar Jónsson
tók sig til og hóf að safna efnivið
til stórrar bókar um íslenska fiska,
sem nú hefur séð dagsins Ijós.
Bók Gunnars hefst á greiningu
á helstu einkennum fiska, til
glöggvunar á þeim orðum og
hugtökum, sem koma fyrir strax í
næsta kafla um greiningu fiska,
en alls hafa nú 231 fiskur fundist
á íslenska hafsvæðinu.
Svipmót og einkenni hverrar
ættar kemur vel fram í ágætum
teikningum Magnúsar Stephen-
sen, og er flokkun fiska svo grein-
argóð í þessu registri, að
mönnum ætti vart að verða um
megn að þekkja langflesta fiskana
með því að nota ættaskrána. Á
eftir ættaskrá þessari kemur meg-
inmál bókarinnar, sem er lýsing
á hverjum fiski ásamt mynd af
hverjum og einum, jafnframt því,
sem útbreiðslu og lífshátta er
getið, stundum í alllöngu máli.
Aðalnytjafiskar okkar fá að sjálf-
sögðu mesta umfjöllun, og er öll
frásögn gagnorð og án málaleng-
inga, krydduð hressilegu málfari,
sem einkennir reyndar bókina
alla.
Aftast í bókinni kemur skrá yfir
íslensk fiskaheiti og nöfn fiska á
átta erlendum málum auk
norður-amerískra sérheita.
Prentun og frágangur bókar-
innar er allur til fyrirmyndaroger
til dæmis öll uppsetning kafla-
skipta og fyrirsagna til prýði.
Myndir eru margar, yfirleitt
skýrar og góðar og innan á bókðr'
spjöldum eru litkort SjómælinBa
íslands af hafinu umhvertÞ
landiðog helstu fiskimiðum lanCl
grunnsins.
Það fer vitaskuld ekki mij'
mála, að í svo viðamikilli
sem þessari, er sitt hvað, sem
betur mætti fara og undirritaðm
kysi að hafa á annan veg. En flnb
er það smávægilegt, og hrind'
ekki þvíaðhöfundi hefurtekista
gefa glöggt yfirlit yfir íslenska
fiska, skemmtilega skrifað og lmr'
dómsríkt. Ég tel þett verk nr-
Gunnars tvímælalaust merkusW
bók um íslenska fiska, sem samin
hefur verið í röska hálfa öld. Þetta
er ómissandi bók fyrir alla Þa'
sem fást við dýralíf í sjó á einn eða
annan hátt og bætir úr brýnnl
þörf.
Ingvar Hallgrímsson-
KAUPIÐ
TÍMARITIÐ ÆGI
Fiskifélag íslands
Höfn Ingólfsstræti
Reykjavík
100-ÆGIR