Alþýðublaðið - 23.06.1923, Síða 4
Karl Guðmundsson, annar Þor-
geir Jónsson, þá Kristján L.
Gestsson.
Þá var það síðasta, en ekki
s'zta, reipdrátturinn, sem var ef-
laust það atriði, sem dregið hatði
fólkið út á völlinn í þetta sinn,
Þrjár átta manna sveitir skyldu
heyja reipdrátt frá félögunum
í. R., K. R. og Armanni. Varð
það til að vekja iögnuð mikinn
meðal áhorfendanna, þegar þær
hinar fríðu sveitir þrömmuðu
fram á sjónarsviðið, enda vár
það tíguleg sjón. Voru þar sam-
an komnir stærstu hnullungar,
sem félögin höfðu á að skipa,
alt stæltir menn og stæðilegir
mjög, sem ekki eru alt áf til
sýnis á íþróttaveliinum. Sýndust
sveitir þær, hver um sig, vera
alt að því ósigrandi. Fyrst skyldu
keppa Ármann og í. R. Veittist
Ármanni létt að sigra í. R„
því að þó í. R. hefði Gunnar
frá Selalæk á endanum hjá sér,
þá hafði það lítið að segja, þar
sem á hinum endanum voru
bæði Sigurjón og Tryggvi. Á
sömu leið fói fyrir í. R., þegar
það kepti við K. R., því að þar
var nú hver »boltinn« öðrum
stærri, enginn eiginlega minstur.
Dálítil mistök urðu hjá dómar-
anum, þegar Ármann og K. R.
keptu, svo áð ekki verður sagt
um úrslitin strax. Eiga félögin
þvi eftir að komast að' niður-
stöðu uat, hvort stæltara er,
sem eflaust verður á næstunni.
Hiakkar vfst margur til.
tslandsglíinan
í gærkveldi fór þannig, að Sig-
urður Greipsson (U. M. F. B.)
hlaut flesta vÍDningana, 7, og
því beltið og glímukonungsnáfn-
bót að auk. f>eir Magnús Sig-
urðsson (A). Hallgrímur Jóns on
(Akranesi) og Eggort Kristjáns .
son (A.), hlutu sína 4 vinninganá
hver. Jörgen Þorbergsson (E.)
og Ottó Marteinsson (A.) 3, Ast-
valdur Þorbergsso i (E) 2, og
Jón Guðmundsson (A.) 1. 3 af
keppendunum glímdu at fegurð,
þeir ,’Ottó, Ásvaldur og Jörgen;
fengu þeir klapp áhorfenda í
verðlaun, en annað ekki.
Reybjavíknrajiétek hefir vörð
þessa viku.
Um daginn og veginn.
nijónilistar-lijóuin Haraldur
Sigurðsson frá Kallaðarnesi koma
með »íslandi< og halda hljóm-
leika á mánudag og þriðjudag,
sbr. auglýsingu. Er þar gott
söngelskum mönnum til listnautn-
ar að hyggja.
Listverkasatn Einars Jónsson-
ar myndhöggvara verður opnað
tii sýnis fyrir almanning kl. 2
sfðdegis á morgun. Gerir það
daginn að hátíðisdegi.
t
Sjómenn! Munið fundinn í
félagi ykkar í kvöld kl. 7 J/2 í
Iðnó.
Samskotin til rússnesku barn-
anna, er Bandalag kvenna gekst
fyrir snemma í vetur, námu xoo
pd. sterl. Hefir stjórn Bandalags-
ins fengið skírteini fyrir því, að
fyrir féð hafi verið stofnað eld-
hús, er fæði 100 börn í 20 vikur
og beri nafn íslands.
25 ára stúdentsafmæli ætla
sextán lærðir menn að halda hér
30. þ. m., og eru þeir nú að
dnfa hingað, sem ekki §ru bú-
settir hér.
Hfð íslenzka prentnrafélag
heldur árlegan fulltrúafund á
morgun kl. 1 í húsi U. M. F. R.
við Laufásveg.
Blómasýnlngu heldur Banda-
lag kvenna næstu daga í Iðn-
skólanum, og verður hún opnuð
á morgun ki. 1 e. h. Sýnd verða
inniblóm, garðbióm og íslenzk
sumarblóm. í sambandi við sýn-
inguna flytja þeir fyrirlestra,
R^gnar Ásgeirsson garðyrkju-
maður á mánudagskvöidið kl.
8 x/a um ræktun matjurta og
Einar Heigason garðyrkjustjóri
á þriðjudagskvöld á sama kiukku-
tírna.
Eldhússýníugu Kvenréttinda-
féiags íslands er haldið áfram í
og á morgun f Iðnskóian-
um milli kl. 1 og 7 e. h. Skýtir
SigUrborg Kristjánsdóttir hús-
stjórnarkennarj sýninguna fyrir
gestum og flytur fyrirffistra
milli kl. 5 og 6 um næringar-
gildi fæðuefnanna.
»Araguaya«, útlent skemti-
skip, er væntanlegt hingað um
aðra helgi og ætlar að standa
hér við tvo daga.
Gestmargt verður hér í bæn-
ura næstu vikur,. því að ýmsir
alisherjarfundir eru þá haldnir
hér. Stórstúkuþingið hefst í dag,
prestastefnan á þriðjudaginn og
enn fremur verður læknafundur
haldinn um sama leýti og ef til
vill fleiri svipaðir fundir.
Prestshjón dönsk, séra Einar
Hoff og kona hans, hafa dvalist
hér um tíma og talað oft á sam-
komum trúrækinna manna. Hata
þau einkum talað mikið um Ind-
lánd og sýnt jafnframt myndir
þaðan, en þar hefir presturinn
stundað trúboð og kent við
skóla.
HagnfræÚaprófi við Akureyr-
arskóiann hafa nýlega lokið 42
nemendur.
Vlðgerð á götuspottum við
höfnina er byrjuð, og er hún
áætiuð kosta um 20 þú«. króna.
Vonandi bætir hún úr foraró-
færðinni þar í bili.
Leikflokknr útlendur er vænt-
anlegur hingað á morgun. Heita
forkóllar hans Rydland og de
Verdier, og ætlar flokkurinn að
sýna hér nokkra leiki, sænska,
norska og danska.
Smjörlíki 80 aura, smjör, tólg,
sauðakjöt. Ódýr sykur. Hannes
Jónsron, Laugavegi 28.
Munið, að kaffið er bezt hjá
Litla katfihúsinu, Laugavegi 6,
ísienzkur rjómi út f kaffið.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hallbjörn HaSldórssoo.
Praníamiöja Hailgrími Benediktssonar, Borgstaðastræíi 19.