Ægir - 01.01.1986, Síða 14
Höfðahreppur og bæjarbúar
stofnuðu árið 1947 Útgerðarfélag
Höfðakaupstaðar. Félagið keypti
tvo 26 tonna vélbáta og nefndi
Auðbjörgu ogÁsbjörgu. Bátarnir
voru á síld að sumrinu, en stund-
uðu línuveiðar yfir veturinn.
1952 var þriðji báturinn keyptur,
var það Aðalbjörg. Á sjötta ára-
tugnum gekk útgerð vélbáta oft-
ast illa, vegna aflatregðu, og
neyddist félagið til að selja öll
skipin á árunum 1959 og 1960. í
staðinn var keyptur 55 tonna
bátur, Helga Björg. Gekk útgerð
hennar nokkuð vel næstu ár.
Fimm árum seinna þótti kominn
tími til að endurnýja, gamla
Helgan var seld, en nýr bátur
keyptur sem hlaut sama nafn.
Nýja Helga stundaði síldveiðar á
sumrin, en togveiðar eftir að
síldin brástenn á ný. Síðustu árin
gekk Helga á vetrarvertíð frá
Grindavík, en hún var seld 1971,
eftir að vélarbilanir og aflaleysi
hafði hrjáð útgerðina. Útgerðar-
félag Höfðakaupstaðar gekk árið
1972 inn í Skagstrending h.f. sem
þá var á leið í skuttogarakaup.
Ýmsir fleiri hafa átt og gert út
vélbáta frá Skagaströnd á þessu
tímabili, en flestir voru bátarnir
litlir. Þeirraámeðal var Útgerðar-
félagið Höfðaklettur, sem stofnað
var 1958 og eignaðist bátana
Höfðaklett og Skallarif.
Togaraútgerð var reynd einu
sinni, en stóð stutt. Það var árið
1951 sem hlutafélagið Höfða-
borg keypti togara með sama
nafni. Var hann gerður út frá
Skagaströnd í eitt ár. Ekki þótti
fært að stunda útgerð á svo stór-
virku tæki á þeim tíma.
í tvo áratugi eftir 1947 gekk erf-
iðlega að halda uppi nægri
atvinnu fyrir bæjarbúa. Bátarnir
voru of litlir, aflaleysi viðvarandi,
og tvö frystihús bitust um aflann
sem á land kom. Ekkert fyrirtæki
gat byggt sig upp til afgerandi for-
ystu í atvinnumálunum. En þar
kom að Skagstrendingar samein-
uðust um uppbyggingu undir-
stöðunnar; sjávarútvegsins.
Útgerðin blómstrar
— bærinn dafnar
Skagstrendingur h.f. var stofn-
aður 1968 af hreppnum og
hreppsbúum. Segir frá því fyrir-
tæki á öðrum stað í þessum grein-
arflokki. í stuttu máli másegja, að
frá stofnun þess félags hafi útgerð
blómgast á Skagaströnd. Tvö stór
stálskip voru keypt í byrjun, síðar
myndarlegur skuttogari og enn
síðar var byggður fyrsti frystitog-
ari landsmanna. Skrefin hafa
verið stór, og verðmæti sem á
land berast á Skagaströnd hafa
margfaldast.
Á síðasta ári voru auk togar-
anna Arnars og Örvars gerðir út
frá Skagaströnd 5 bátar af stærð-
inni 21-70 tonn. Þeir stunda
aðallega rækju- og skelfiskveiðar.
Höfnin á Skagaströnd. Mesta löndunarhöfn sjávarafla á Noröurlandi vestra áriö
1984. Hús Síldarverksmiöjunnar áberandi á uppfyllingunni. Höföinn í baksýn.
Togarar Skagstrendinga í höfn. Tvö afkastamikil veiöiskip, sem standa undir
drjúgum hluta atvinnu og auðs á Skagaströnd.
6-ÆGIR