Ægir - 01.01.1986, Page 22
Skagstrendingur h.f.
Skagstendingur h.f. var stofn-
aður í desember 1968. Að félag-
inu stóðu Höfðahreppur og íbúar
hreppsins. Almenn samstaða
varð um þátttöku í félaginu, svo
að segja má að nær því hver ein-
asta fjölskylda á staðnum legði
fram sinn skerf. Atvinnuástand
hafði verið bágborið næstu ár á
undan, bátum fækkað og síldin
horfið enn einu sinni. Skagstend-
ingur var stofnaður til að blása
fjöri í atvinnulífið með útgerð
stærri báta.
Þegar var hafist handa og keypt
187 rúmlesta stálskip, sem
smíðað var 1964. Skipið var nefnt
Arnar og kom til Skagastrandar í
janúar 1969. í lok ársins 1970 var
svo keypt annað skip, Örvar,
nýlegt skip frá Noregi, 223
brúttólestir að stærð. Örvar var
eitt fyrsta fiskiskip á íslandi sem
ísaði allan sinn afla í kassa. Bæði
skipin stunduðu togveiðar árið
um kring, og gengu þær þokka-
lega. Við komu þessara báta hófst
nýtt framfaraskeið á Skagaströnd.
íbúum í hreppnum tók að fjölga
á ný, eftir stanslausa fækkun í
heilan áratug. Skagstrendingum
fjölgaði um tíu af hundraði, þegar
á fyrsta starfsári fyrritækisins
1969.
Skuttogari frá fapan
Eftir 1970 tók skuttogurum að
rigna á hafnir landsins. Skag-
strendingar voru ekki eftirbátar
annarra í því efni. í desember
1972 sömdu þeir um kaup á
nýjum skuttogara frá Japan, og
var hann afhentur þeim átta mán-
uðum seinna, í ágúst 1973. Var
það tíundi japanski togarinn sem
til landsins kom. Skuttogarinn
hlaut nafnið Arnar HU 1, og ber
það enn. Báðireldri bátarnir voru
seldir eftir að togarinn var
keyptur. Arnar hefur síðan lagt
upp afla hjá Hraðfrystihúsinu
Hólanes h.f. á staðnum. Skip-
stjórar á Arnari hafa verið Guðjón
Sigtryggsson fram til ársins 1982
og síðan Birgir Þórbjarnason.
Útgerðin hefur lánast vel, og
staðið hefur verið í skilum með
allar fjárskuIdbindingar. Togar-
inn hefur aflað vel og ætíð verið
með þeim hæstu á Norðurlandi.
Árið 1984 var Arnar tíundi í röð-
inni af íslenskum togurum sem
mestu verðmæti skiluðu á land.
Aflinn var þá 3.578 tonn. Á síð-
asta ári bar Arnar á land 2.700
tonn.
Tvennt er helst talin skýring á
traustum rekstri Arnars og raunar
Örvars, nýrri togarans einnig.
Öruggur mannskapur og gott
viðhald. Allt viðhald skipa Skag-
strendings er í höndum heima-
manna, nema slippvinna. Það er
vélaverkstæði Karls Berndsen
sem sér um að vélar og spil gangi
einsogtil erætlast. Þettaermikil-
vægt atriði þegar haft er í huga að
Skagaströnd með rúma 600 íbúa
stendur undir útgerð tveggja tog-
ara. Margir eiga erfitt með að trúa
að slíkt gangi upp, og benda á
dæmi um land allt máli sínu til
sönnunar. En þegar traustar
áhafnir ásamt nauðsynlegri þjón-
ustu eru til staðar í heimahöfn,
þá er slíkt vel mögulegt, eins og
sýnir sig hér á þessum stað.
Frystitogarinn Örvar
Er kominn var góð reynsla af
skuttogaranum, þótti forsvars-
mönnum Skagstrendings tfmi til
kominn, að hugsa sértil hreyfings
á ný. Skuttogarinn Örvar var
smíðaður á Akureyri, með bún-
aði til flökunar og frystingar á
bolfiski. Upphaflega var hann
teiknaður sem hefðbundinn
skuttogari, en á smíðatímanum
var ákveðið að breyta honum í
frystiskip. Örvar hóf veiðar og
vinnslu í apríl 1982. Hann hefur
Skutttogarar Skagstrendings í heimahöfn; Arnar fjær, en Örvar nær.
14-ÆG1R