Ægir - 01.01.1986, Síða 34
sá nýbyggði hefur verið afhentur.
Minni bátarnir eru framleiddir
eftir pöntun, en mester um slíktá
vorin.
Dráttarbraut
Mánavör starfrækir dráttar-
braut, sem nýverið hefur verið
reist á Skagaströnd. Hún hefur
breytt miklu fyrir fyrirtækið'varð-
andi alla vinnu við viðgerðir
báta. Því jafnframt plastfram-
leiðslunni er rekið trésmíðaverk-
stæði í skipasmíðastöðinni og
einnig er fengist við járnsmíðar.
Mest er vinnan við dráttarbraut-
ina milli vertíða vorog haust. Það
eru nær eingöngu bátar úr Húna-
flóa sem stöðin sinnir, enda
útgerð vaxandi við flóann síðasta
áratug, og næstu skipabrautir á
Siglufirði og ísafirði.
Hjá Mánavör starfa nú 20
menn, en 25—30 á sumrin. Hörg-
u11 er á menntuðum iðnaðar-
mönnum við smíðar og verk-
stæðisvinnu. Kemur þar inn í, að
menn fórna ekki tíma og erfiði til
að læra til slíkrar iðju, ef afrakstur-
inn er ekki í samræmi við það. Þá
er hægt að hafa jafngott eða langt-
um meira við önnur störf við
blómlegan sjávarútveg. Skipa-
smiðirnir á Skagaströnd horfa þó
bjartsýnir til framtíðar og bíða
eftir að takast á við verkefni við
stærri og meiri skip úr plasti, en
áður hafa verið framleidd hér á
landi.
Eftir nokkrar umferðir og frágang er kominn bátur sem til er í hvað sem er.
Ólafur Cuðmundsson verkstjóri (t.v.) ásamt samverkamanni.
Dráttarbrautin á Skagaströnd, sem tekin var í notkun í fyrra. Mánavör rekur braut-
ina, sem er í eigu sveitarfélagsins. Hús Mánavarar f baksýn.
26-ÆGIR