Ægir - 01.01.1986, Síða 36
„Það er ekki heilagt að
vinna fiskinn í landi."
Skipstjórinn á Örvari HU 21, Guðjón Sigtryggson
sóttur heim.
Frystitogarinn Örvar var lagstur að höfn á Skagaströnd föstudagsmorg-
uninn 25. október síðastliðinn, eftir tuttugu og eins sólarhrings úti-
veru. Aflinn var 120 tonn af grálúðu, 30 tonn af þorskflökum og 20
tonn af ýsuflökum, allt fryst og pakkað í lestinni. Aflinn samsvarar um
350 tonnum upp úr sjó.
Örvar var smíðaður á Akureyri ogafhentur snemma árs 1982. Hann
er 50 metra langur og mælist 498 brúttórúmlestir að stærð. Togarinn
var upphaflega teiknaður sem hefðbundið ísfiskskip, en á byggingar-
tímanum var ákveðið að breyta honum í frystiskip. Þá var fyrirséð að
erfitt yrði að standa undir fjármagnskostnaði vegna skipsins, nema
taka upp þessa nýbreytni. Örvar hefu nú verið að veiðum í tæp fjögur
ár, ogaflaðmjögvel. Áárinu 1984 varaflinn4529 lestirí 18veiðiferð-
um. Úthaldsdagar voru 355 á því ári, ef marka má „Útveg", en afla-
verðmætið var hið mesta af öllum skipum íslenska togaraflotans, 122
milljónir króna. í fyrra varð aflinn nokkru minni, um 3900 tonn, og
hásetahlutur allt árið um 1600 þúsund krónur.
Þegar tíðindamaður Ægis var staddur á Skagaströnd umræddan
októberdag í haust, var ekki hægt að láta hjá líða, að reyna að ná
fundum þess er stýrir þessu merka aflaskipi, sem leggur svo drjúgan
skerf til þjóðarbúsins, svo við hin getum eytt því aftur. „Ebbi skip-
stjóri", eins og hann er almennt nefndur á sinni heimaslóð, tók vel í
svolítið spjall, og hér á eftir fer það helsta sem þar bar á góma.
Örvar HU 21 frá Skagaströnd. Fyrsti frystitogari íslendinga.
Guðjón Ebbi Sigtryggsson flutt-
ist ásamt fjölskyldu sinni til
Skagastrandar árið 1970, en áður
bjó hann á ísafirði og starfaði sem
sjómaður. Síðustu sex árin sem
stýrimaður á Guðbjarti ÍS.
Guðjón tók við skipstjórn á
Arnari, 200 tonna stálskipi sem
Skagstrendingar höfðu þá fest
kaup á. Strax árið eftir var öðru
skipi bætt við, og fór Guðjón þá
yfir á það. Það var Örvar, keyptur
frá Noregi, nokkru stærri en
Arnar. Örvar var fyrsta skipið í
íslenska flotanum ásamt skipi frá
Súgandafirði sem kom nokkru
síðar, sem ísaði allan sinn afla í
fiskikassa. Síðan hafa öll skip af
stærri gerð tekið upp þann hátt.
Með komu Arnars og Örvars hófst
nýtt tímabil í atvinnumálum á
Skagaströnd.
„ Um 1970 fór að rétta hér úr
kútnum, þegar bátarnir voru
orðnir tveir. Og með togaranum
Arnari, sem keyptur var 1973,
komst hér á festa og stöðug
atvinna, sem haldist hefursíðan,"
segir Guðjón Ebbi, sem fylgst
hefur með uppbyggingu Skaga-
strandarsíðasta hálfan annan ára-
tuginn, og lagt lóð sitt þar á vog-
arskálar.
Skuttogarinn Arnar var smíð-
aður í Japan og afhentur árið
1973. Guðjón tók þegar við
stjórninni, en bátarnir tveir voru
seldir á brott úr bænum. Arnar er
enn gerður út frá Skagaströnd.
Hann er 47 metra langur og 460
rúmlestir. Guðjón var með hann
allt til ársins 1982, er hann færði
sig enn einu sinni um set, á Örvar
hinn nýja. Á Arnari var Guðjón
með í skuttogarabylgjunni frá
upphafi. Guðjón rifjar upp:
„Útgerðin gekk vel, aflinn
þetta 2500-3000 tonn á ári fyrstu
árin, sem þótti mjög gott. En eftir
1976, er menn komust upp á lag
með flottrollið, og nokkru seinna,
er settur var skrúfuhringur á Arnar
28-ÆGIR