Ægir - 01.01.1986, Qupperneq 44
Halldór Bernódusson:
Hringormur ífiski
Á nýafstöðnu Fiskiþingi komu
fram tvær ályktanir frá Fjórðungs-
samböndunum á Norðurlandi og
Vestfjörðum.
Ályktun Norðlendinga:
Beini þeim tilmælum til Fiski-
þings að aukin áhersla verði lögð
á að halda selastofninum í
skefjum. í því efni skal bent á stór-
aukningu á selormi í fiski sem
veldur miklum vandræðum í fisk-
vinnslu og gerir fiskinn jafnvel
óvinnsluhæfan. Auk þess hlýtur
selur að spilla fyrir möguleikum
íslendinga í laxeldi með tilliti til
hafbeitar. Þingið ítrekar fyrri sam-
þykktir í þessu efni.
Frá Fjórðungssambandi Vestfirð-
inga kom eftirfarandi ályktun:
45. Fjórðungsþing fiskideild-
anna á Vestfjörðum haldið á ísa-
firði 19. október 1985, ítrekar
aðvörun sína frá 1983 um vax-
andi vandamál sem hringormur
er orðinn í fiskistofnum og hefur
aukist í öllum tegundum fisks á
síðustu árum. Ber því að gera allt
serm hægt er til að stöðva þessa
þróun m.a. að lagt verði verulegt
fjármagn til að hefta útbreiðslu
selastofnsins, unnið verði mark-
visst að úrbótum varðandi tækni
og framfarir við að tína hringorm
úr fiski.
Það var fyrir um 25 árum sem
að hringorm varð vart í þorski í
það miklum mæli að hann greini-
lega jók kostnað fiskvinnslunnar.
Sýnatökur sýndu að nokkur
munur var á hringormamagni í
fiski eftir veiðisvæðum. Einkum
kom fram að þorskur veiddur á
grunnslóð á Breiðafirði, úti af
ísafjarðardjúpi og austur með
ströndum hafi meiri orm í sér en
þorskur veiddur á öðrum
svæðum. Þannigvar það 1963 að
þorskur veiddur á grunnslóð var
með 1—1,5 orm og þorskur
veiddur á djúpslóð með um 0,5
orm pr. kgflaka. Alltfram til 1982
virðist aukning á hringormi í
þorski hafa verið jöfn og er svo
komið að 1983 er hringormur í
þorski veiddum á grunnslóð
kominn upp í 7 orma pr. kg flaka
og þorskur veiddur af togurum á
djúpslóð var með um 3 orma pr.
kg flaka. Á árinu 1984 sýna
prufur að togaraþorskur er með
að meðaltali 4,65 orma og línu-
og handfærafiskur með um 8,80
orma pr. kg flaka. Á árinu 1985
hefurormurenn aukist í þorski og
er togaraþorskur með 5,50 orma
og línu- og handfæraþorskur með
9,65 orma pr. kg flaka.
Fylgir hér með súlurit er sýnir
aukningu á ormi í þorski frá 1963
til 1985. Þar sést greinilega
hversu geigvænleg aukning hefur
verið á árunum 1983, 1984 og
1985, einnig er þar sýnd útkoma
daganna 11. okt. til 17. okt. 1985
þar sem línu- og handfæraþorsk-
ur er unninn og er meðaltal þess-
ara daga 13,45 ormar pr. kg flaka.
Kostnaður við að tína orma úr
kg þorskflaka miðað við laun 1.
okt. 1985.
pr. kg. flök
kr.
1964 0,65
1970 1,67
1983 3,22
1984 4,69
1985 5,11
og dagarnir 11 /10 til 17/10 1985
þar sem ormar voru 13,45 pr. kg
flaka er það kr. 9,23 pr. kg flaka.
Þessi aukningergeigvænlegog
sýnir að þorskurinn er ekki hæfur
til manneldis nema ormurinn sé
tíndur úr honum.
Aldrei hefur þetta þó verið
verra en á haustmánuðum 1985
er við höfum verið að vinna þorsk
veiddan 6-12 sjómílur úti af Súg-
andafirði á smærri bátum á línu.
Þar kemur fram í sýnatökum að
ormar eru frá 13-20 í kg flaka.
Sem dæmi má nefna að 5. nóv.
s.l. var verið að vinna þorsk sem
í reyndust vera 20,48 ormar pr.
kg flaka. Inn í staðalinn við
útreikning á bónus er þetta
reiknað og tíminn er 3,69 mín-
útur að tína orminn úr hverju kg
af flökum.
Ég vona að þetta geri svolítið
grein fyrir hversu vaxandi vanda-
mál þetta er hjá okkur sem að
veiðum mikið af fiski sem gengur
upp á grunnið á sumrin, fer svo
frá á haustin og er þá svona
sýktur. Þessi þorskur sem einu
36-ÆGIR