Ægir - 01.01.1986, Page 46
Ef litið er til framtíðar fiskveiða
og fiskvinnslu á öllum tegundum
botnfiska, þá verður að taka á
þessu máli af fullri alvöru því
hvers virði verður þessi mikla
auðlind þjóðarinnar í framtíð-
inni, ef hún verður svo sýkt af
hringormum að ekki verður
mögulegt að framleiða gallalausa
vöru úr íslenskum botnfiski?
Vinnulaun og annar kostnaður
við að tína orma úr fiski verður
kominn langt upp fyrir það sem
að fiskvinnslan þolir.
Skaðvaldurinn, selurinn, sem
allt frá landnámi hefur verið
nýttur til fæðis og skæðis hefur
nú um árabil vegna ytri aðstæðna
fengið að lifa óáreittur við
strendur landsins og stofninn
stækkað mikið. Hefur þar einnig
farið saman að byggð hefur lagst
af á þeim slóðum þar sem aðal
kæpingarstöðvarnar eru t.d. á
Breiðafirði og við Húnaflóa. Þær
rannsóknir sem gerðar hafa verið
sýna að hringormur er um fjórum
sinnum meiri í útsel en í landsel.
Þannig virðist vera um 150 ormar
í landsel og um 600ormar í útsel.
Aætlað er að stærð selastofns-
ins sé um 40 þúsund landselir og
um 10 þúsund útselir.
Það er einnig áætlað að land-
seliréti um það bil 670 kgáári og
útselurinn um 1.500 kg á ári.
Þannig að arðrán selastofnsins
á fiskstofnunum er á milli 40 og
50 þúsund tonn á ári.
Það er augljóst mál að eitthvað
raunhæft verður að gera til þess
að við lendum ekki í alvarlegum
ógöngum með þessi mál og að
komast hjá frekari kostnaðarauka
fiskvinnslunnar við að hreinsa
hringorma úr fiski.
Einnig verða útgerðarmenn að
hafa í huga að meðan verið er að
veiða fisk sem er sýktur af hring-
ormi, þá er nýting fiskstofnanna
lakari, því að lauslegar athuganir
sem hafa verið gerðar, sýna að
það er samhengi á milli fjölda
orma í fiski og þyngdar fisksins
miðað við lengd.
38-ÆGIR