Ægir - 01.01.1986, Side 63
Furuno veiðarfæramælir CN-10
Nýlega er kominn á markaðinn veiðarfæramælir-
inn CN-10 frá Japanska fyrirtækinu Furuno Electric
Co., Ltd.
Veiðarfæramælirinn byggir á þráðlausri sendingu
nierkja frá nemum festum á höfuðlínuna, til botn-
stykkis skipsins og koma upplýsingarnar fram á lita-
skjá mælisins.
A höfuðlínuna er fest sérstökum sendi er varpar
bljóðbylgjum bæði niður til botns og einnig upp til
yfirborðsins. Innbyggt ísendinum er búnaðurtil mót-
töku á endurvörpunum og eru þessar upplýsingar
síðan fluttaráfram með hljóðbylgjum til botnstykkis
skipsins, sjá nánar á mynd 1. Á litaskjá veiðarfæra-
^ælisins má þannig fá síritamynd af sviðinu frá
höfuðlínu til botns og einnig frá höfuðlínu til yfir-
borðsins.
Jafnframt þessu má setja allt að fjóra magnnema á
^ollpokann ogfá þannig upplýsingar um aflamagnið
' Pokanum. Magnnemarnir flytja upplýsingar með
hljóðbylgjum til móttakara, tengdum sendinum, en
hann sendir þær áfram til botnstykkis skipsins.
Á litaskjá tækisins koma endurvörpin fram á sírit-
andi mynd í átta litum í samræmi við styrk þeirra.
Hægt er að velja um eftirtalda fjóra myndmöguleika
á skjánum:
I Frá höfuðlínu og upp.
II Frá höfuðlínu og niður.
III Frá höfuðlínu og upp, á efri helmingi skjás og frá
böfuðlínu og niður, á neðri helmingi skjás.
Raunmynd miðað við yfirborð sjávar, á efri hluta
skjás og séð niður frá höfuðlínu, á neðri hluta
skjás.
IV
Þannig er hægt að sjá á síritandi mynd afstöðu
v®iðarfærisins til fisksins, botnsins og yfirborðsins í
sömu andrá. Ennfremur kemur fram sírituð hitalína
Cr sýnir hitastigið við veiðarfærið. Hitastigið á hverju
aognabliki birtist auk þess tölulega efst til vinstri á
s iánum og neðst til vinstri sjást fjögur hólf er fyllast
' takt við aflamagnið í veiðarfærinu. Að lokum bitast
o ulegar upplýsingar um dýpið neðst á vinstri hluta
skjásins.
Mynd 1.
Fyrirkomulag búnaðar á veiðarfæri.
Á skjánum er stillanleg dýpislína, (V.R.M.) og má
lesa dýpi hennar í tölum við hægri enda hennar. Jafn-
framt má tengja CN-10 við dýptarmæli skipsins (ef
hann er frá Furuno) og er þannig hægt að lesa dýpt
höfuðlínunnar á skjá dýptarmælisins.
Þremur botnstykkjum er taka á móti merkjum frá
sendinum, er komið fyrir í sameiginlegum tanki
undir skipinu. Eitt botnstykkið vísar beint aftur, en
hin tvö lítiðeitttil hvorrarhliðarogerþaðgerttil þess
að taka við merkjum sendisins þegar veiðarfærið er
ekki beint fyrir aftan skipið, t.d. í beygjum.
Sendirinn er festur á höfuðlínuna og er hann með
innbyggðann hitanema, ásamt búnaði til að senda
hljóðbylgjur upp til yfirborðsins og niður til botnsins
m fnufusTriTC
Botn -v Fiskul'5-'
ht6"iuöiína
sendilína
iyinf^n Fiskur
* dýpi botn
220 m
Mynd 2.
Skjámynd CN-10 a) raunmynd séð frá yfirborði,
b) séð niður frá höfuðlínu.
ÆGIR-55