Ægir - 01.01.1986, Side 67
Stakkur RE 186
I ágúst 1983 afhenti Skipasmíðastöð Guðmundar
Lárussonar h.f. á Skagaströnd 15 rúmlesta fiskiskip
úr trefjaplasti, smíðanúmer 22, sem hlaut nafnið
Stakkur RE 186. Petta er sjötti báturinn í jpessum
stærðarflokki frá stöðinni og er hann smíðaður eftir
sömu teikningu og nýsmíði nr. 21, Laxdal NS. LJpp-
haflega vargömul GM aðalvél íbátnum, en á s.l. ári
var skipt um og sett vél afsömu gerð og stærð.
Stakkur var uphaflega í eigu Sæmundar Rögn-
valdssonar og Rögnvaldar Sæmundssonar, en eig-
endaskipti urðu nú um áramótin og er hann nú i eigu
Jóns Traustasonar Hellissandi, sem jafnframt erskip-
stjóri.
Almenn lýsing:
Bolur skipsins er smíðaður skv. reglum Siglinga-
málastofnunar Ríkisins um smíði plastfiskiskipa.
Fremsti hluti þilfars er með reisn, en undir þilfarinu
er skipinu skipt í fimm rúm með vatnsheldum kross-
viði. Fremst undir þilfari er stafnhylki (keðjukassi);
þá lúkar með tveimur hvílum, bekk og eldunarað-
stöðu, olíukynnt Sólo-eldavél; þar fyrir aftan er vél-
arrúm; þá fiskilest með áluppstillingu og trefja-
plastplötum í gólfi; og aftaster skuthylki. ívélarrúmi
eru tveir brennsluolíugeymar, en ferskvatnsgeymir
er undir íbúðum í framskipi. Stýrishús er framantil á
þilfari, yfir lúkar og vélarrúmi, og tengist framhlið
þess lúkarsreisn. Masturer í afturkanti stýrishúss, og
á því er bóma.
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá GM, gerð 4-71, fjögurra strokka
tvígengisvél, sem skilar 85 KW (115 hö) við 1800 sn/
tpfn. Við vélina er niðurfærslugír frá Allison, niður-
gírun 2.96:1, ogskrúfubúnaðurfrá Newage Propuls-
'°n, skrúfa 4ra blaða með fastri stigningu, þvermál
787 mm.
Mesta lengd ..................... 11.52
Lengd milli lóðlín .............. 10.50
Breidd ........................... 3.75
Dýpt (mótuð) ..................... 1.76
l.estarrými ........................ 13 m3
Brennsluolíugeymar ................ 0.8 m3
Ferskvatnsgeymir .................. 0.2 m3
Rúmlestatala ....................... 15 brl
Skipaskrárnúmer .................. 1666
Um aflúttaksbúnað á aðalvél er reimdrifinn rafall
frá Motorola, 2.9 KW, og útkúplanleg vökvaþrýsti-
dælafyrirvindubúnað. Stýrisvél errafstýrðogvökva-
knúin frá Wagner.
Fyrir vélarrúm er rafdrifinn blásari. Rafkerfi er 24 V
jafnstraumur. Upphitun í lúkar er með Sólo-eldavél.
Fyrir neysluvatnskerfið er rafdrifin dæla.
Vindubúnaður:
í skipinu er 0.61 línuvinda frá Petters, vökvaknúin,
búin afdráttarbúnaði. Færavindur eru frá Elliða
Norðdahl Guðjónssyni af gerðinni Elektra (rafdrifn-
ar) og eru sex talsins.
Rafeindatæki o.fl.:
Ratsjá:
Segu láttaviti:
Sjálfstýring:
Loran:
Dýptarmælir:
Örbyljgustöð:
Sjóhitamælir:
FurunoFR-701,48sml
Borðáttaviti, 6"
Wagner
Furuno LC 70
Furuno FVC200, litamælir
President, 25W
Örtölvutækni
Af öðrum búnaði má nefna Callbuoy neyðartal-
stöð og 4ra manna Víking gúmmíbjörgunarbát,
búinn Olsen sjósetningarbúnaði.
er tímarit þeirra, sem vilja fylgjast með
því helsta, sem er að gerast í sjávarútvegi.
ÆGIR-59