Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1989, Side 14

Ægir - 01.02.1989, Side 14
66 ÆGIR 2/89 þaðan við bátaflotann og atvinnu- lífið. 1948 er fiskmjölsverk- smiðjan búin nýjum tækjum og ný reist 1950. 1953 er tekið í notkun nýtt verslunar- og skrifstofuhús. 1973 kaupir svo félagið Síldar- bræðsluna hf. sem orðin vargjald- þrota. 1974 eru gerðar töluverðar endurbætur á fiskverkunarstöð félagsins á Dalvík, frystihúsi og saltfiskverkun. Kristján Ólafsson var um árabil útibússtjóri en er nú fulltrúi KEA á sviði sjávarútvegs- og fiskvinnslu, síðan 1984. Nú- verandi útibússtjóri er Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson. KEA á stóra hluti í Útgerðarfé- lagi Dalvíkinga hf. og Söltunarfé- lagi Dalvíkinga hf. Af öllu þessu sést að umsvif KEA eru afar mikil. Félagið hefur af myndarskap staðið að þeirri öru uppbyggingu sem átt hefur sérð stað á Dalvík, enda fjárhagslega mjög sterkur aðili. Sumum finnst ugglaust nokkuð langt gengið, og tala þá um kaupfélagsvaldið sem flytur hagnað af fiskvinnslu sinni til Akureyrar. Fullvíst má þó telja að atvinnuhættir Dalvíkinga væru á annan veg hefði þessa fjársterka félags ekki notið við. Frystihús Ú.K.E.D. hefur tekið við afla frá 1984 sem er á bilinu 7-8 þúsund tonn á ári. Móttekinn afli árið 1988 var 8.130 tonn. Á árunum 1973 og 1974 voru gerðar miklar endurbætur á húsinu. Á s.l. ári var fjárfest þar fyrir um 20 millj. króna og um s.l. áramót var Frystihús Ú.K.E.D. — Skipting eftir vinnsluaðferðum Freðfiskur Saltfiskur Skreið 1984 1985 1986 1987 1988 1985 1986 1987 tonn tonn tonn 1.730 1.518 1.363 1.715 1.201 1.474 _______________226________176 252 Framleiðsluverðmæti í þús. kr. 178.962 252.399 315.160 406.644 480-500.000 Frá Dalvíkurhöfn. sett upp svokölluð flæðilína og keypt ný flökunarvél. Kostaði það aðrar 20 milljónir. Húsið er í dag meðal best búnu frystihúsa landsins, en þarf 130-150 tonn hráefnis á viku til að hlutirnir gangi eðlilega. Togarar Ú.D. hafa lengst af séð fyrir hráefnisöflun- inni. Frystihúsið verkar einnig mikið í salt og skreið. Frystihús- stjóri er Gunnar Aðalbjörnsson. Togarann Baldur keypti kaup- félagið á síðasta ári af útgerðafé- laginu Upsaströnd, sem starfar nn ekki lengur. Afli Baldurs EA 1988: bolfiskur 2246 tonn, aflaverðmash 77.491 þús. kr. Kaupfélagið hefur frá upphafi sínu á Dalvík reki verslanir og stutt er síðan glæsilegt verslunarhús- næði var tekið í notkun, Svarf- dælabúð. í fiskvinnslunni hjá Ú.K.E.D- starfa um 70 manns yfir árið og 3 launaskrá hjá útibúinu komasl 400-500 manns, þar af er fastráðið fólk um 150 manns. Söltunarfélag Dalvíkur 1944 tekur þetta félag til starfa- f>að stofnuðu allmargir útvegS' menn og var tilgangurinn fyrst og fremst að reka síldarsöltun. Mikil umsvif voru hjá félaginu á síldar- árunum. Snemma kom upp sú hugmynð að reisa verksmiðju til niðursuðu síldar. Af því varð þó ekki. Eftir að síldin hvarf var lítið umleikis- þangað til rækjuverksmiðjan er sett á laggirnar 1975. 1. vinnslu- dagur var 31. maí það ár. Segja má að síðan hafi verið stöðug vinna hjá fyrirtækinu, þó ekki allan tímann við rækjuvinnslu, e° lang mest. Töluvert var verkað a* saltfiski og skreið og lítillega söltuð síld. Síðustu árin, eða fra 1983, hefur rækjuvinnsla verið stöðug, að heita má. Skuttogarinn Dalborg EA 3U

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.