Ægir - 01.02.1989, Síða 16
68
ÆGIR
2/89
Kópaskeri. 1974 er keyptur 407
lesta skuttogari frá Flekkefjord í
Noregi. Var Björgvin kominn þar
„aftur".
Þegar Aðalsteinn Loftsson selur
pólska togarann Baldur 1974/
1975 þá var ákveðið að Ú.D. tæki
að sér að brúa það bil sem varð í
hráefnisöflun og þar með atvinnu-
málum staðarins. Því var ákveðið
að kaupa nýtt skip. Samið var við
Slippstöðina á Akureyri. Til að
flýta afgreiðslu var um það samið
að skipasmíðastöðin í Flekkefjord
smíðaði skrokkinn en Slippstöðin
sá um niðursetningu tækja og
endanlegan frágang. Kemur Björg-
úlfur EA 312 til heimahafnar í apríl
1977, 424 lestir að stærð. Var
hann þrem metrum lengri en
Björgvin. Útgerðin hefur á heild-
ina litið gengið áfallalítið og skipin
verið hinar mestu happafleytur.
1986 voru framkvæmdar miklar
endurbætur á Björgúlfi í Hollandi
og eftir það er skipið mun öflugra
veiðiskip.
Skipstjóri á Björgúlfi erSigurður
FHaraldsson.
I árslok 1986 er samið um smíði
á skipi fyrir félagið við norsku
stöðina í Flekkefjord og jafnt'ramt
um samið að „gamli" Björgvin sé
lagður upp í þau kaup. Sigldi sá
„gamli" í hinsta sinn frá eigendum
sínum á Dalvík 8. júlí 1988,
áleiðis til Noregs.
Kom svo nýja skipið, Björgvin
EA 311, til heimahafnar 26. júlí
s.l. í mígandi rigningu. Glæsilegt
nýtískulegt skip, 499,8 br. lestir,
51 m að lengd. Togarinn er með
frystilest og upphaflega hugsaður
sem bæði ísfisk- og frystitogari
með heilfrystingu á karfa og grá-
lúðu í huga. Síðan hefur orðið
verulegt verðfall á grálúðu og
karfa og hefur togarinn þess vegna
aðeins farið einn túr á frystingu.
En möguleikarnir eru fyrir hendi ef
aðstæður á mörkuðum breytast.
Skipstjóri á Björgvin er Vigfús
jóhannesson og stjórnar hann nú
þessu mesta skipi Dalvíkinga.
Af rúmlega 6 þúsund tonna afla
beggja togaranna 1988 var 5.100
tonnum landað í heimahöfn.
Framkvæmdastjóri Ú.D. er
Valdimar Bragason.
Sæplast
Sæplast hf. hefur starfað á Dal-
vík frá 1984 er það var keypt úr
Garðabæ. Nokkrir framtakssamir
einstaklingar stóðu að þessum
kaupum og nutu liðssinnis Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar. Fram-
leidd voru fiskker úr plasti og er
svo enn. Framan af var fyrirtækið í
tæplega 300 ferm. leiguhúsnæði-
Framleiðslan líkaði vel og sú
þróun að nota kerin ruddi sér til
rúms. Dafnaði félagið hratt. Flutti
það starfsemi sína í eigið húsnæði
19. júní 1987. Var nýja húsið
þegar of lítið og því strax haldið
áfram að byggja við það. Starf-
semin við plastkerin og brettin,
sem fyrirtækið framleiðir, er öll <
þessu húsi, sem er um 1.600 ferm-
að grunnfleti. Þar eru vinnslusalir,
verkstæði, lager og skrifstofur.
1987 kaupir Sæplast fyrirtækið
Börk hf. í Hafnarfirði. Markmiðið
með þeim kaupum var fyrst og
fremst að renna styrkari stoðum
undir rekstur Sæplasts. Þá starf-
semi sem keypt var í Hafnarfirði
rekur Sæplast nú á Akureyri og eru
þar framleiddar húseiningar, svo
og kæli- og frystiklefar.
Nú eru starfsmenn Sæplasts hf-
20 talsins. Á Dalvík eru fram-
leiddar 5 stærðir af fiskkerum, frá
380-1000 lítra. Nokkrar gerðir
eru og framleiddar af brettum-
Yfirleitt hefur þessi vara líkað vel,
enda til hennar vandað.
Hjá fyrirtækinu hefur markvisst
verið unnið að vöruþróun frá upp"
hafi í nánu samráði við aðila 1
sjávarútveginum. Aflað hefur
verið markaða erlendis og er það
starf í fullum gangi, og hefur verið
frá 1985.
Verð og gæði framleiðslunnar
eru fyllilega sambærileg við aðra-
Meðan innanlandsmarkaðurinn
var að taka við sér voru langir bið-
listar eftir vörunum. Nú hetur
þetta jafnast, enda erfiðleikar með
peninga í flestum greinum sjávar-
útvegsins.
Vörur fyrirtækisins hafa verið
kynntar á sýningum erlendis og
hafa Sæplastvörur verið seldar til
Færeyja, Grænlands, Kanada,
austurstrandar Bandaríkjanna og
nú í seinni tíð er Evrópa vaxandi
markaður. Þá hefur nýlega verið
selt til Afríku, Ástralíu og Nýia
Sjálands.
Vanir menn viö flatningu.