Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1989, Qupperneq 16

Ægir - 01.02.1989, Qupperneq 16
68 ÆGIR 2/89 Kópaskeri. 1974 er keyptur 407 lesta skuttogari frá Flekkefjord í Noregi. Var Björgvin kominn þar „aftur". Þegar Aðalsteinn Loftsson selur pólska togarann Baldur 1974/ 1975 þá var ákveðið að Ú.D. tæki að sér að brúa það bil sem varð í hráefnisöflun og þar með atvinnu- málum staðarins. Því var ákveðið að kaupa nýtt skip. Samið var við Slippstöðina á Akureyri. Til að flýta afgreiðslu var um það samið að skipasmíðastöðin í Flekkefjord smíðaði skrokkinn en Slippstöðin sá um niðursetningu tækja og endanlegan frágang. Kemur Björg- úlfur EA 312 til heimahafnar í apríl 1977, 424 lestir að stærð. Var hann þrem metrum lengri en Björgvin. Útgerðin hefur á heild- ina litið gengið áfallalítið og skipin verið hinar mestu happafleytur. 1986 voru framkvæmdar miklar endurbætur á Björgúlfi í Hollandi og eftir það er skipið mun öflugra veiðiskip. Skipstjóri á Björgúlfi erSigurður FHaraldsson. I árslok 1986 er samið um smíði á skipi fyrir félagið við norsku stöðina í Flekkefjord og jafnt'ramt um samið að „gamli" Björgvin sé lagður upp í þau kaup. Sigldi sá „gamli" í hinsta sinn frá eigendum sínum á Dalvík 8. júlí 1988, áleiðis til Noregs. Kom svo nýja skipið, Björgvin EA 311, til heimahafnar 26. júlí s.l. í mígandi rigningu. Glæsilegt nýtískulegt skip, 499,8 br. lestir, 51 m að lengd. Togarinn er með frystilest og upphaflega hugsaður sem bæði ísfisk- og frystitogari með heilfrystingu á karfa og grá- lúðu í huga. Síðan hefur orðið verulegt verðfall á grálúðu og karfa og hefur togarinn þess vegna aðeins farið einn túr á frystingu. En möguleikarnir eru fyrir hendi ef aðstæður á mörkuðum breytast. Skipstjóri á Björgvin er Vigfús jóhannesson og stjórnar hann nú þessu mesta skipi Dalvíkinga. Af rúmlega 6 þúsund tonna afla beggja togaranna 1988 var 5.100 tonnum landað í heimahöfn. Framkvæmdastjóri Ú.D. er Valdimar Bragason. Sæplast Sæplast hf. hefur starfað á Dal- vík frá 1984 er það var keypt úr Garðabæ. Nokkrir framtakssamir einstaklingar stóðu að þessum kaupum og nutu liðssinnis Iðn- þróunarfélags Eyjafjarðar. Fram- leidd voru fiskker úr plasti og er svo enn. Framan af var fyrirtækið í tæplega 300 ferm. leiguhúsnæði- Framleiðslan líkaði vel og sú þróun að nota kerin ruddi sér til rúms. Dafnaði félagið hratt. Flutti það starfsemi sína í eigið húsnæði 19. júní 1987. Var nýja húsið þegar of lítið og því strax haldið áfram að byggja við það. Starf- semin við plastkerin og brettin, sem fyrirtækið framleiðir, er öll < þessu húsi, sem er um 1.600 ferm- að grunnfleti. Þar eru vinnslusalir, verkstæði, lager og skrifstofur. 1987 kaupir Sæplast fyrirtækið Börk hf. í Hafnarfirði. Markmiðið með þeim kaupum var fyrst og fremst að renna styrkari stoðum undir rekstur Sæplasts. Þá starf- semi sem keypt var í Hafnarfirði rekur Sæplast nú á Akureyri og eru þar framleiddar húseiningar, svo og kæli- og frystiklefar. Nú eru starfsmenn Sæplasts hf- 20 talsins. Á Dalvík eru fram- leiddar 5 stærðir af fiskkerum, frá 380-1000 lítra. Nokkrar gerðir eru og framleiddar af brettum- Yfirleitt hefur þessi vara líkað vel, enda til hennar vandað. Hjá fyrirtækinu hefur markvisst verið unnið að vöruþróun frá upp" hafi í nánu samráði við aðila 1 sjávarútveginum. Aflað hefur verið markaða erlendis og er það starf í fullum gangi, og hefur verið frá 1985. Verð og gæði framleiðslunnar eru fyllilega sambærileg við aðra- Meðan innanlandsmarkaðurinn var að taka við sér voru langir bið- listar eftir vörunum. Nú hetur þetta jafnast, enda erfiðleikar með peninga í flestum greinum sjávar- útvegsins. Vörur fyrirtækisins hafa verið kynntar á sýningum erlendis og hafa Sæplastvörur verið seldar til Færeyja, Grænlands, Kanada, austurstrandar Bandaríkjanna og nú í seinni tíð er Evrópa vaxandi markaður. Þá hefur nýlega verið selt til Afríku, Ástralíu og Nýia Sjálands. Vanir menn viö flatningu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.