Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1989, Síða 25

Ægir - 01.02.1989, Síða 25
2/89 ÆGIR 77 ^arðíjr mönnun réttindamanna á fskiskipaflota Norðlendinga. ólinn er því vel búinn tækjum 1. ennslu á siglinga- og fiski- eitartaski. Allt eru þetta ný tæki ‘S' ^'^eo-plotter, radar, loran- æ miðunarstöð, dýptarmælar, extantar, fjarskiptatæki o.fl. Enn /,Unn''-> a5 því að búa skólann ■ kjum og á síðasta ári fékk skól- nn gefnar 3 PC-tölvur ásamt reutara °§ standa vonir til að í ár er i aægt að bæta við tölvubún- lnn og fleiri tæki er tengjast ^ennslu í fjarskiptum. , lns °8 af þessu má sjá hefur s 0 inn átt mjög góð samskipti við etgerðaraðila á staðnum og hafa emendur fengið að fara um borð atana til að læra á þann tækja- r)U,|la-i .Sem Þar er- J togaraflota I 3 vJJ<inga hafa bæst ný og glæsi- 8 skip sem eru búin fullkomn- s u siglinga- og fiskileitartækjum. Kipstjórafélag Norðlendinga b ,Ur aJJt upphafi stutt við 1 á skólanum og það ásamt tomannafélagi Eyjafjarðar færði 0 ° anum að gjöf myndbandstæki hef SJtanvarP til kennslu. Félagið til ^ent ^ra ser ýmsar ályktanir stuðnings þessari starfsemi og sýnt skólanum ræktarsemi s.s. með viðukenningum til nemenda fyrir námsárangur á lokaprófi. Allt frá upphafi hefur Dalvíkur- skóli átt mjög góð samskipti við Stýrimannaskólann í Reykjavík og hafa kennarar og skólastjóri verið óþreyttir við að veita upplýsingar þegar eftir hefur verið leitað. Nemendur 2. stigs fara á nám- skeið í Stýrimannaskólann í rat- sjársamlíki en það er eini skólinn sem er búinn slíku tæki. Á hverju skólaári hefur skólinn fengið heimsókn frá Öryggisskóla SVFÍ þar sem nemendur fá kennslu í meðferð öryggis- og björgunar- tækja. Þá hafa nemendur ætíð farið í námsferð með varðskipum Landhelgisgæslunnar til verklegrar þjálfunar í meðferð stjórnbúnaðar skipa. Með tilkomu 2. stigs hefur stýri- mannanám eflst á Dalvík. Fleiri nemendur sækja skólann þar sem hægt er að Ijúka fullgildu fiski- mannsprófi frá skólanum en það er sú prófgráða sem flestir stefna á. Við skólann er nýleg heimavist þar sem nemendur geta fengið inni meðan á námi stendur og þá er Dalvík þannig í sveit sett að auð- hn°Ó á björ8unaræíingu. velt er fyrir nemendur af Norður- landi að komast heim um helgar því góðar vegasamgöngur eru við staðinn. Um leið og nemendum fjölgar skapast meiri möguleikar á félags- starfi nemenda og á síðasta ári var haldin árshátíð og þá gáfu nemendur út veglegt skólablað sem hlaut nafnið „Sextant". Nú í vetur hafa nemendur reynt að efla félagsstarf með því að gefa út sér- stök nemendaskírteini, haldið hefur verið skákmót og spurninga- keppni og þá er ritnefnd að vinna að útgáfu 2. árgangs af skólablað- inu „Sextanti" og er reiknað með að það komi út í marsmánuði. Auk skipstjórnarnáms er nú í skoðun hvort hefja megi nám í fiskiðn á Dalvík. í haust var boðið upp á nám á fiskvinnslubraut sem hugsuð er sem aðfaranám að fisk- iðnaðarnámi. 15 nemendur innrit- uðust á brautina og vænta heima- menn þess að framhald geti orðið á þessu námi næsta haust. í athugun er hvernig leysa megi kennslu í hinum verklega þætti en ekki liggur enn fyrir hvort mennta- málaráðuneytið er tilbúið til að taka þátt í þeim kostnaði sem því fylgir. Húsnæði er til staðar en það þarfnast lagfæringar til að koma kennslunni við og þá hafa fyrir- tæki í fiskiðnaði á staðnum lýst sig reiðubúin til að styðja við starf- semi sem þessa. Standa vonir til, ef afverður, að tengja megi námið atvinnufyrirtækjum á staðnum og ef til vill víðar við Eyjafjörð. Með þessu móti yrði Dalvík miðstöð sjávarútvegsnáms á framhalds- skólastigi á Norðurlandi og má telja að vel geti farið á því þar sem allar aðstæður eru vel til þess fallnar eins og hefur sýnt sig varð- andi skipstjórnarnámið sem þegar er orðið fast í sessi. Höfundur er skólastjóri Sjávarútvegs- skólans á Dalvík.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.