Ægir - 01.02.1989, Page 60
112
ÆGIR
2/89
Hollenskur kræklingur vinsæll
Hollendingar framleiða meira af
kræklingi en aðrar þjóðir í Evrópu.
Megnið af veiðunum og fram-
leiðslunni fer fram við Zeeland
(sjá kort). Á hverju ári í apríl og
maí er veiddur smákræklingur á
grunnsævi við Zeeland og er hann
færður yfir á önnur mið í Oost-
erschelde. Þar er kræklingurinn
látinn vera í tvö til þrjú ár á meðan
hann er að ná æskilegri stærð. Á
þessum tíma er hann færður til
nokkrum sinnum til að hann nái
að aðlagast mismunandi sjó og
fæðu. Þetta er talið tryggja sem
mestan vöxt krækliganna. Þegar
þeim áfanga er náð, er krækl-
ingurinn veiddur og fluttur á
markað í Yerseke, Zierikzee,
Bergen og Zoom.
Um 50 prósent af fullvinnslu
hollensks kræklings fer fram í
Yerseke, og þar er hann seldur
ferskur, frosinn og niðursoðinn í
mismunandi legi eða sósum.
Strangt eftirlit er með kræklinga-
veiðum og framleiðslu af hálfu
Evrópubandalagsins og verða
eftirt'arandi atriði að vera í lagi: „í
hverjum 100 kg af kræklingi verða
að vera að minnsta kosti 16 kg af
kjöti. í hverri löndun verður 40
prósent aflans að vera að minnsta
kosti 50 mm að lengd. I hverju
kílói mega ekki vera fleiri en 200
kræklingar." Þessu er fylgst vel
með og ef meirihluti aflans er
undir leyfilegri stærð verða fiski-
menn að flytja hann aftur út á
miðin og koma honum þar fyrir til
að geta veitt hann síðar, þegar
hann hefur náð réttri stærð.
Kræklingavertíðin hefst síðsum-
ars eða á haustin og eru þá víða
hátíðahöld að því tilefni. Þessar
hátíðir eru fjölsóttar og í ágúst síð-
astliðnum komum um 50 þús.
manns til að taka þátt í hátíða-
höldunum.
Um það bil fjórðungur krækl-
ingaframleiðslunnar í Evrópu fer
fram í Hollandi og eru aðalmark-
aðirnir fyrir krækling, í hvaða bún-
ingi sem er, í Belgíu og Frakk-
landi. Tekjur Hollendinga af
kræklingaframleiðslu hefur aukist
jafnt og þétt á undanförnum árum>
samfara aukinni framleiðslu °f>
meiri fjölbreytni í vinnslu. Þá hat'1
þeir að mestu sloppið við menS'
unarslys, sem eins og mörgum eí
kunnugt olli Dönum miklum erfið
leikum á sínum tíma.
Aflinn tekinn um borð.
Fullunninn kræklingur í neytendaumbúðum.
Á þessu svæði veiða Hollendingar krækling og á merktu svæðunum er
lingurinn að mestu fullunninn.
REYTINGUR