Ægir - 01.06.1989, Side 6
290
ÆGIR
6/89
Erlingur Hauksson:
Selir og áhrif þeirra
á fiskveiðar
Neysla sela á nytjafiskum og áhrif hennar á fiskafla
Inngangur
NNú þegar Hafrannsókna-
stofnun, hefur gefið út til-
lögur um „leyfilegt" veiði-
magn nytjafiska á íslandsmiðum
fyrir þetta ár (Hafrannsókna-
stofnun 1988) og sjávarútvegs-
ráðuneytið sett fram kvótaskipt-
ingu þessa árs, er ekki úr vegi að
draga inn í umræðuna náttúrulega
keppinauta okkar um fiskinn í
sjónum - sjávarspendýrin. Þó sér
í lagi selina, en á undanförnum
árum hefur líffræði íslenskra sela-
stofna, landsels og útsels verið
könnuð á margvíslegan hátt, þar á
meðal fæða þeirra (Erlingur
Hauksson 1984). Vitneskja um
fæðu selanna, gerir kleift, að
gefnum ákveðnum forsendum, að
ákvarða neyslu þeirra á nytja-
fiskum og áhrif þeirrar neyslu á
fiskveiðar. Við þetta, er í þessari
grein beitt aðferð R. J. H. Bevertons
(1985)
Á undanförnum áratugum hefur
selum, sérstaklega útselum, fjölgað
hér við land. Verður því í greininni
fjallað um áhrif stækkandi sela-
stofna á fiskstofnana og veiðarnar.
Einnig verða tekin dæmi um hugs-
anlegar afleiðingar fækkunar sela
á veiðar nytjafiska á íslandsmið-
um. Það skal í upphafi tekið fram
að útreikningar sem þessir geta
reynst ærið óvissir, vegna náttúru-
legra breytinga í hafinu, sem erfitt
er að spá fyrir um og verður því að
skoða niðurstöðurnar sem grófar
ályktanir, en ekki sem nákvæmar
staðreyndir.
Áður hefur Sólmundur Einars-
son fiskifræðingur leitt líkur að því
að neysla sela við ísland af sjávar-
fangi gæti verið af stærðargráð-
unni 100 þús tonn (Sólmundur
Einarsson 1978), en að öðru leyti,
er þetta fyrsta tilraunin á prenti til
nánari ákvörðunar á áhrifum sela
á fiskveiðar við landið, svo höf-
undi sé kunnugt um. Það hafa þó
margir lærðir og leikir sett fram
sínar skoðanir og ályktað um þetta
á síðum dagblaðanna og í fjöl-
miðlum, því þetta efni er sjó-
mönnm sem og mörgum öðrum
mjög hugleikið, enda miklir hags-
munir í húfi.
rið
Hingað til hafa selir ekki ve
veiddir, á sama hátt og nV^3
stofnar fiska og hvala, og
eKK'
fengið þá veiðistjórnun sem sli 1
nytjastofnar. Né heldur þá skipu
lögðu veiði er refir, minkar 0
hreindýr hafa fengið.
Aðferð til mats á neys^
sela af nytjafiskum °»
áhrifum á fiskveiðar °»
forsendur slíks mats
Fæða sela
Könnun a
fæðu sela
1979'
o g
1982, leiddi í Ijós að landse '^
útselir eru að mestu leyti
og éta af flestum tegundum nV