Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1989, Síða 22

Ægir - 01.06.1989, Síða 22
306 ÆGIR 6/89 Ameríku dró þetta þann dilk á eftir sér að aðsóknin að veitingahúsum Long John Silver minnkaði um 6%. Long John Silver leggja mikla áherslu að fá fólk inn. Um leið og fólkið er komið inn á veitingastað- ina er möguleiki á viðskiptum. Verðhækkunin varð þannig til að minnka aðsóknina og þeir sáu sig tilneydda, í fyrsta lagi að fara yfir í aðrar vörutegundir eins og kjúkl- inga, og í öðru lagi að fara yfir í ódýrari fisk. Heildarmarkaðurinn fyrir mat- væli er tiltölulega stöðugur og öll barátta snýst um að fá hlutdeild í þeim markaði. Landbúnaður, sér- staklega í Bandaríkjunum, hefur orðið fyrir barðinu á aukinni eftir- spurn á fiskafurðum og hefur snú- ist til varnar. í ár áætla t.d. banda- rískir nautgripabændur, að verja um 60 milljónum dollara í al- mennar auglýsingar á nautakjöti. Offjárfesting Fundarmenn höfðu einnig miklar áhyggjur af mikilli fjárfestingu sem átt hefur sér stað í sjávarútvegi víða um heim, vegna fyrrnefndrar hækkunar á fiskverði. Það hefur verið góð afkoma í sjávarútvegi á undanförnum árum og ríki hafa fjárfest í greininni sem hefur orðið æ arðbærari með hverju árinu. Meðal annars eru Alaskabúar að kaupa 40 nýja frystitogara, og fjárfesta um Vi milljarð dollara á 2 eða 3 árum í sínum sjávarútvegi. Það er víðar fjárfest, Argentína og Uruguay hafa bætt við sig 29 skipum. Nýsjálendingar og margir fleiri eru að koma sterklegar inn í þetta dæmi. Menn búast almennt ekki við að miklu hærra verð fáist fyrir fisjfáfurðir á næstunni en verið hefur undanfarið. Fremur er búist við pressu á verð niður á við, vegna þess að uppskerubrestur á korni í Bandaríkjunum hefur leitt til mikils niðurskurðar búfjár, þannig að kjötbirgðir voru í hámarki í haust og endast væntan- lega fram á sumarið og reiknað er með að það pressi niður verð. Hvað lengri tíma sýn varðar, þá búast menn við að það verð sem hægt verður að hanga á til fram- búðar fyrir þroskblokk liggi á bil- inu 1.50 dollarar til 1.70 dollarar fyrir pundið. Það er talsvert hærra en nú er, en ekkert í líkingu við það sem það var á árinu 1987. Eitt af því sem fundarmenn virt- ust sammála um, var að fiskkaup- endur munu í ríkara mæli en orðið er, færa sig yfir í ódýrari tegundir. Kemur þar einkum tvennt til, að kaupendur vilja geta boðið upp á meiri breidd í verðlagningu, og í öðru lagi að þeir vilja ekki vera um of háðir tiltölulega fáum selj- endum. Þessi framvinda getur reynst okkur skeinuhætt, bæði vegna þess að nýir samkeppnisað- ilar koma í vaxandi mæli inn á markaðinn, og ef þeim tekst að ná fótfestu getur það leitt til þess að þrýstingur myndist til lækkunar á fiskverði. Ný framleiðsluríki En eru einhverjir framleiðendur sem geta komið inn í myndiní1- Það eru einkum þrjú ríki sem vir ast ætla sér stóran hlut í framtíðar markaði fyrir sjávarafurðir; þ-e^ fyrst Alaska, þar er stefnt að þv' 3 , byggja upp fiskiðnað nú og náinni framtíð. Eins og fyrr k°n1 fram þá eru aðilar í Alaska bún" að fjárfesta í 40 skuttogurum, 6 eru að bæta við 20. Þeir reik'13 með að geta, þegar fram í sæ^'r' framleitt eða veitt 2 til 2V2 mi \ ónir tonna af fiski á ári, sem umtalsverð viðbót á markaði vesta hafs. Annað ríki sem virðist l sér allstóran hlut er Nýja-Sjálan • Það sem háir þeim fyrst og fren1 er að þeir hafa tiltölulega litla v^ eskju um auðlindir sínar, og , j að þreifa sig áfram og ætla sér e að fara mjög hratt í uppbygg'n^ heldur að reyna að komast að þvl hvað auðlindirnar þola og S3^ þess að offjárfesta ekki eins gjarnan vill verða í þessari i gre'? virð' teg' Ný-Sjálendingar eiga að því er ist talsverðar auðlindir, m.a- und sem hefur verið kölluð n0^j sem er lík þorski, kannski e alveg eins góð en allt að P Neytandinn velur vöruna eftir gæðum varningsins

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.