Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1989, Page 23

Ægir - 01.09.1989, Page 23
9/89 ÆGIR 471 athyglisvert að hlýða á fulltrúa Evrópubandalagsins segja frá stefnumörkum Evrópubanda- lagsins um aögerðir til að auka öryggi fiskiskipa í löndum þess. M.a. hefur verið ákveðið að leggja eiun meiri áherslu á menntun og þjálfun áhafna fiskiskipa en hingaðtil hefur verið gert. Fjölgun innflytjenda við vinnu á fiskiskipum 1 öllum löndum Evrópubandalags- ins hefði að margra áliti ekki orðið til þess að auka öryggi og draga úr slysatíðni meðal fiskimanna en hefði leitt til minnkandi virðingar fyrir atvinnugreininni. Meðal ann- ars vegna slakrar stöðu öryggis- mála væri áhugi ungs fólks á störfum við fiskveiðar lítill. Hluti vandamálsins innan Evrópu- bandalagsríkjanna fælist enn- ftemur í því að það væru allt of margir opinberir aðilar að fást við ýmsa þætti öryggismála sjómanna án samræmdrar heildarstjórnar. Sem dæmi var nefnt að 98 samtök °g stofnanir hafa með þessi mál að gera í Englandi á einn eða annan hátt. Það kom ótvírætt fram á ráð- stefnunni að áhugi er nú víða mik- 'II fyrir því að auka grundvallar- mnnsóknir til að auka öryggi og fekka slysum við fiskveiðar. Stærstur hluti rannsóknanna sem nú er í gangi snýr að vinnuum- hverfi og aðbúnaði. Mælingar á hávaða, áhrif hreyfinga skips á vellíðan og afköst áhafnar, vinnu viö veiðarfæri, fyrirkomulag vinnslubúnaðar um borð í skipum °g öryggi við vindur og spil. Slysaskráning og slysatíðni I erindum um þetta efni kom m.a. fram að tíðni vinnuslysa á togurum í Kanada hefur farið ört vaxandi undanfarin ár og var á árinu 1987 30%. Hefur komið í Ijós í Kanada að slysatíðni hefur aukist á öllum fiskiflota síðustu ár og slysin orðið jafnframt alvar- legri. Um 60% aukning varð á forfalladögum sjómanna vegna slysa 1987 miðað við árið 1980. í Bandaríkjunum er slysatíðni á fiskiskipum talin sjöfalt hærri en á kaupskipum og fimmfalt hætti en á olíuflutningaskipum. Á spánskum fiskiskipum er slysatíðni meðal allra fiskimanna talin vera um 6%. Athygli vakti að 75% þeirra slysa sem skýrslur höfðu borist um höfðu orðið á þilfari. í erindi sem fulltrúi Noregs flutti kom fram að þeir telja að veruleg fækkun dauða- slysa á fiskiskipum hafi orðið frá árinu 1984 eða úr 13-14 dauða- slys/ár í 6-7 dauðslys/ár (á 10.000 ársverk). Vilja Norðmenn þakka þessu breytingu á fjölþættum aðgerðum í öryggismálum sem gripið var til í framhaldi af til- lögum sérstakrar nefndar um bætt öryggi í fiskiskipum. Fyrirliggjandi upplýsingar hjá Alþjóðavinnumála- stofnuninni um slysatíðni benda til þess að slysatíðni sé tvöfalt meiri meðal fiskimanna sem eru yngri en 18 ára, en þeirra sem eldri eru. Öryggi við vinnu og aðbúnaðuráhafnar Því var haldið fram að aukin sjóhæfni skipa s.s. með yfirbygg- ingu þeirra hefði í mörgum til- fellum leitt til harðari sjósóknar og það hefði e.t.v. átt þátt í því að ekki hefði orðið fækkun á vinnu- slysum. Gerðar hafa veriö athug- anir á áhrifum hreyfinga og titrings til að meta þreytuáhrif, kom þar glöggt fram að vinna við miklar hreyfingar dregur fljótt úr afköstum manna. Einn fyrirlesar- inn setti fram þá hugmynd að á hverju skipi fylgdu útreikningar á hreyfingu skips miðað við tiltekið sjávarástand þannig að skipstjóri gæti betur metið hvenær ráðlegt væri að hætta veiðum og vinnslu um borð vegna hreyfinga skipsins. All margir fyrirlestrar fjölluðu um hávaða í skipum og kom fram að frekari rannsókna sé þörf á þessu sviði þó Ijóst sé að yfirleitt sé hávaði of mikill í fiskiskipum og var fjallað um nauðsyn þess að setja reglur um hávaðamörk í fiskiskipum. Fram kom að þær mælingar sem gerðar hafa verið á hávaða í fiskiskipum voru í flestum tilvikum töluvert yfir mörkum sem Alþjóðasiglinga- málastofnunin hefur gefið út sem leiðbeiningar fyrir hávaða- mörk í kaupskipum en þau mörk voru menn almennt sammála um að væri eðlilegt að miða við einnig í fiskiskipum. (Reglur þær sem gilda um hávaðamörk í íslenskum skipum frá 1985 miða að verulegu leyti við leiðbeiningar leyti við leiðbeiningar Alþjóða- siglingamálstofnunarinnar um

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.