Ægir - 01.09.1989, Qupperneq 30
478
ÆGIR
9/89
Eins og flestir íslendingar
þekkja, hefur átt sér stað umtals-
verð verðhækkun á sjávarafurðum
á síðustu tveim áratugum. Heims-
afli hefur aukist mjög mikið á
þessu tímabili, vegna verðhækk-
unarinnar, og um leið dregið úr
verðhækkunum. í síðasta tölu-
blaði Ægis var sagt frá þróun
heimsaflans og vakin sérstök
athygli á mikilli aflaaukningu
Bandaríkjamanna. Sú aukning afla
sýnir svo ekki verður um villst, að
fiskveiðar í Bandaríkjunum eru
orðnar það arðvænlegar, að þær
standast fyllilega samkeppni við
aðra fjárfestingakosti þar í landi
Aukning fiskeldis í heiminum á
undanförnum árum er þó enn
skýrara dæmi um hvert stefnir í
þessum málum.
Fiskeldi
Hér verður rakið í tölum
hvernig eldi Atlantshafslax, hefur
aukist á liðnum árum og hverju
sérfræðingar spá um vöxt þess
fram að aldamótum. Einnig verður
lítillega fjallað um eldi á rækju.
Lesendur ættu að hafa í huga að
laxeldið er einungis lítill hluti af
heildinni. Framleiðsla í eldi fiska
og annarra sjávardýra nam rúmum
10 milljónum tonna árið 1983 og í
greininni er gífurlegur vöxtur. Lax-
eldið er tekið hér sem nokkuð ýkt
dæmi um aukningu fiskeldis í
heiminum.
I töflu 1. sést hvernig heildar-
framboð á laxi hefur þróast á
árunum 1980-1985 og hverju
menn spá um þróun þess til 1990.
Árið 1980 er heildarframboð af
laxi 591 þúsund tonn og þar af er
framboð eldislax einungis 2%,
eða 10 þúsund tonn. Á næsta ári
telja menn að heildarframboð á
þessarri fisktegund verði yfir millj-
ón tonn og veiði af skipum hafi
náð jafnvægi við rúmlega 800
þúsund tonna afla. Aukið framboð
kemur að meiri hluta frá fiskeldinu
og alfarið þegar til lengri tíma er
litið.
í töflu 2. er spá norsku Hag-
rannsóknastofunnar frá árinu
1985, um líklega eftirspurn eftir
eldislaxi. Tekið er fram að senni-
lega sé hámarkið sem gefið er í
töflunni um líklega eftirspurn, of
lágt mat. Framleiðslan hefur þegar
farið langt fram úr 150 þúsund
tonnum, sem vissulega hefur leitt
til verulegrar verðlækkunar, en þó
ekki algjörs verðhruns, sem þýðir
að verðteygni eftirspurnar á
þessum markaði er meiri en
gengur og gerist á mörkuðum mat-
væla.
í töflu 3, er síðan framleiðsla
áranna 1981-1987 og spá um lík-
lega framleiðslu 1988-1990.
Samkvæmt bestu heimildum hefur
heimsframleiðslan aukist meira a
árunum 1988 og 1989, en þarna
var spáð. Eins og lesendur sjá,
mun framleiðsla á eldislaxi meira
en tuttugufaldast á þessum áratug-
Framleiðsla eldislax hér á landi
mun þegar hafa farið fram úr þeim
tvö þúsund tonnum sem þarna er
spáð að verði framleidd hér a
landi árið 1990 og í Noregi mun
framleiðsla á eldislaxi fara yfir 100
þúsund tonn á þessu ári.
Tafla 1. Heildarframboð af laxi
Uppruni 1980 1985 / 990 (spá)
Þús. tonn % Þús. tonn % Þús. tonn %
Lax úr sjó 581 98 839 95 839 77
Eldislax 10 2 47 5 245 23
Alls: 591 100 886 100 1084 100
Tafla 2. Metin eftirspurn eftir Atlantshafseldislaxi 1990, miðað við verð 1985
Land Lágmark Líkleg Hámark
Frakkland 2100 28000 35000
Þýskaland 16500 22000 27500
Bretland 11250 15000 18750
Önnur Evrópul. 11250 15000 18750
Bandaríkin 22500 3000 37500
Japan 7500 10000 12500
Alls: 90000 120000 150000
Laxeldi í Noregi
í fyrirlestri sem Norðmaðurinn
Erik Hempel hélt á OECD-ráð-
stefnunni, sagði hann að fram-
leiðslugeta Norðmanna á árinu
1987, væri 207 milljónir seiða í
660 seiðaeldisstöðvum og nægi-
legt rými væri til að ala upp í mat-
fiskstærð um 110.000 tonn af lax'
á ári í um það bil 600 eldisstöðv-
um. Hann spáði að eftirspurn
muni aukast mikið og stöðugt um
nokkurt árabil. í spjalli sínu nefndi
hann einnig, að þegar væru
norskir framleiðendur farnir a
finna fyrir vaxandi samkeppni tm
nágrannalöndunum. Hempelfjui
aði sérstaklega um ísland og tal 1
að möguleikar íslendinga væru
einkum faldir í strandeldi, þar sem
með strandeldi gætu íslendingat
náð betri gæðum, en möguleg