Ægir - 01.09.1989, Blaðsíða 31
9/89
ÆGIR
479
v*ri með sjókvíaeldi í Noregi.
Vegna mikils framboðs muni verð
á laxi lækka um tíma. Meðalverð
á eldislaxi hækkaði úr 42.54 Nkr/
kg árið 1986 í 50.35 Nkr/kg árið
1987, en Hempel taldi að meðal-
verð kynni að verða kringum
41.00 Nkr/kg árið 1988. Ef við
ferum verðin á gengi íslensku
krónunar í dag, þá var verðið 375
kr á kíló 1986 og fór í 448 kr/kg
1987. Síðan hefur verðið fallið,
árið 1988 var afurðaverð á eldis-
laxi 361 kr/kg og á þessu ári hefur
verðið verið u.þ.b. 320 kr/kg af
3-4 kílóa laxi, en 260 kr á kíló af
2-3 kílóa laxi.
Heildarhagnaður fór minnkandi
af fiskeldi í Noregi á milli áranna
1985 og 1986, þannig var fram-
legð til fjármagnskostnaðar 18.5%
árið 1985, en einungis 7.8% á
árinu 1986 og framlegð til fjár-
aiagnseigenda rýrnaði síðan enn
frekar á árunum 1987 og 1988.
Loks hafa þær fréttir þorist á þessu
ári að fjöldi stöðva væri að hætta
starfsemi á þessu ári í Noregi,
einkum stöðvar í N-Noregi.
Framleiðslukostnaður
í fiskeldi
Af þessu spjalli Hempels má
draga þær ályktanir að meðan á
bessu verðlækkunartímaþili
standi, falli aukning framleiðslu af
eldislaxi þeim í skaut sem lægstan
hafi framleiðslukostnaðinn.
Teknar hafa verið saman tölur um
framleiðslukostnað á nokkrum
stöðum. Sem dæmi um kostnað
við framleiðslu á eldislaxi er tafla
4, en þar er yfirlit yfir mismunandi
framleiðslukostnað, eftir stærð
stöðva, í fiskeldi í Skotlandi.
Þessar upplýsingar komu fram á
OECD-ráðstefnunni í erindi sem
Susan A. Shaw, skoskur fiskeldis-
fræðingur, hélt. Af töflunni sést að
í fiskeldi gætir „hagkvæmni hinna
stóru eininga", þ.e.a.s. að fjár-
magn og mannskapur nýtist betur í
stórum stöðvum en litlum. í töflu
4, getum við lesið að kostnaður
per framleitt kíló í Skotlandi,
lækkar úr 381 krónu í eldisstöð
sem framleiðir 50 tonn af laxi á ári
í 278 krónur á kíló í stöð sem
hefur tíu sinnum meiri fram-
leiðslu.
í töflu 5, er síðan úttekt á fram-
leiðslukostnaði laxeldisstöðva í
Noregi. Svo sem sést á þeim tölum
Tafla 4. Framleiðslukostnaöur við mism. stórar stöðvar / Tegund kostn: 50 Tn. 200 Tn. Skotlandi 500 Tn.
Seiðakaup 2682300 10729300 26823300
Seiðaflutningur 206300 825300 2063300
Fóðurkaup 5942400 23769600 59424000
Fóðurflutningur 198080 1584640 3961600
Laun:
Stjórn 1782720 1782720 1782720
Starfsmenn 742800 3714000 5942400
Aðkeypt þjónusta 74280 297120 742800
Afskriftir 148560 594240 1485600
Tryggingar 564528 2258112 5645280
Annað 1051805 2511654 5653203
V 111 • IxvtTJTTI •
Alls: 13393773 48066687 113524204
Fjármagnskostn. 5695988.5 1191114.5 25533700
Framl. kostn. alls: 19089762 59977832 139057904
Kostnaður pr. kíló: 381.80 299.89 278.12
Gengi punds =99.04
Land 1981 Tafla 3. Núverandi framleiðsla á eldislaxi og spá árin 1981-1990 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
Bretland: 1000 2100 2536 3912 6921 10338 16000 23000 32000 40000
Noregur 8910 10266 17016 22300 28655 45600 47500 74000 80000 90000
Irland 215 380 590 910 1250 1500 2500 5000 10000 15000
ísland 85 105 900 1500 1700 2000
Fasreyjar 60 105 116 470 1370 2500 2100 8000 11000
Kanada 125 107 119 460 1700 5700 22600 30000
Chile 70 80 94 104 800 1144 3500 7522 15410 20000
Japan 1150 2122 2900 4400 6990 7500 15000 20000 25000 30000
Aðrir 100 150 200 1000 2000 3000 4000 5000 6000 7000
Alls: 11445 15158 23566 32849 47290 71017 93600 143822 200710 245000