Ægir - 01.09.1989, Page 48
496
ÆGIR
9/89
FRÁ_______
ZÆKNIDEILD
Tölvuvæðing aflnýtnimælinga
Almennt
Á undanförnum mánuðum hafa
starfsmenn Tæknideildar Fiski-
félags íslands og Fiskveiðisjóðs
íslands unnið að því að tölvuvæða
mælingar á orkuhagkvæmni skips
og vélbúnaðar. Saga deildarinnar
á sviði orkunotkunar og orkuhag-
kvæmni skipa er orðin löng og má
rekja allt aftur til ársins 1975,
þegar deildin kom sér upp olíu-
rennslismæli og hóf skipulegar
mælingar og kynningar með
þessum búnaði árið 1976.
Á því tímabili sem mælingar
spanna, hefur margvísleg þróun í
búnaði deildarinnar átt sér stað og
margar mælingar framkvæmdar.
Ákveðin tímamót áttu sér stað
með þátttöku í hinu svonefnda
Nordforsk-verkefni, en þá hófust
hjá deildinni fyrstu mælingar á afli
út á skrúfuöxul og þar með einnig
mæling á eldsneytisnýtingu aðal-
véla (eyðslustuðlum). Nú á þessu
ári hefur enn eitt skrefið verið
stigið með hinum nýja búnaði.
Með búnaði þessum fæst mjög
nákvæm samtímamæling margra
þátta í aflnýtni og orkuhag-
kvæmni, auk þess sem skráning er
tölvuvædd, svo og öll úrvinnsla,
þar sem mælitækjabúnaður er
tengdur PC-tölvu.
Til að gefa nokkra hugmynd um
hvaða þætti er unnt að varðveita
og lesa af tölvuskjá eða prentara
samtímis og mæling fer fram, má
nefna:
- Olíunotkun aðalvélar (1/klst)
- Afl yfirfært á skrúfuöxul (hö)
- Snúningshraða skrúfu (sn/mín)
- Bremsuafl vélar (hö)
- Eyðslustuðul vélar (g/hast)
- Spyrnu skips (tonn)
- Ganghraða skips (hn)
TW -AFLREIKNIR
SKRANINGARTÆKI
Til viðbótar ofangreindum
þáttum er mögulegt að rita a
staðnum ýmsa þá ferla sem áhuga-
verðir eru, svo sem olíunotkun og
vélarafl sem fall af ganghraða eða
spyrnu fyrir mismunandi snún-
ingshraða; eyðslustuðla vélar sem
fall af vélarafli fyrir mismunandi
snúningshraða o.fl.
Að hluta til er eldri tækjabún-
aður deildarinnar nýttur, en til
viðbótar hefur verið hannaður og
smíðaður nýr búnaður, sem dærm
skráningartæki og átaksmælir, svo
og hugbúnaður, og hefur sú vinna
verið unnin af starfsmönnurn
Tæknideildar.
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir helstu einingum kerfisins, en
yfirlitsmynd (mynd 1) sýnir þær.
Skráningartæki
í upphafi þegar mælingar á
olíunotkun fiskiskipa hófust á
Tæknideild var notaður svokall-
aður ovalhjólamælir sem er rúm-
málsmælir er mælir nákvæmlega
rúmmál þess vökva er fer i
gegnum hann. Mælirinn var
tengdur jafnstraumsrafal er gaf fra
sér spennumerki í hlutfalli við
olíurennslið í gegnum mælinn.
Spennumerkið var síðan leitt
gegnum kapal til spennumælis er
gjarnan var staðsettur í brúnni-
Petta fyrirkomulag gaf að vísu
ágæta raun en krafðist þess að
fylgst væri með nákvæmni af-
lestrarbúnaðarins. Ennfremur eru
ýmsir þættir varðandi olíurennsli
til aðalvélar með þeim hætti að
æskilegt er að fá meðalgildisvísun
yfir nokkurn tíma.
Þegar mælingar á öxulvægi og
snúningshraða hófust var því farin
sú leið að senda merkin, frá mæli'
nemunum til aflestrartæksins, sem
púlsa með tíðni í hlutfalli við styrk
merkisins. Aflestrartækið telur
púlsafjöldann yfir ákveðið tímabil
og gefur púlsafjöldinn þá meðal-
gildið yfir tímabilið. Ffver mælirás
Mynd 1. Yfirlitsmynd af einingum hins nýja tölvuvædda mælitækjabúnaðar.