Ægir - 01.09.1989, Qupperneq 55
9/89
ÆGIR
503
22. Fyrir matvæli er ein Frigopol kæliþjappa, kæli-
tniðill Freon 22.
íbúöir:
I íbúðarými á neðra þilfari eru fremst tveir 2ja
manna klefar og þar aftan við eru tveir 2ja manna
klefar í síðum og stakkageymsla fyrir miðju ásamt
snyrtingu með salerni og sturtu.
I þilfarshúsi á efra þilfari eru tveir 2ja manna klefar
fremst. S.b.-megin aftan við þá er borðsalur og eld-
hús (samliggjandi og tengt íbúðagangi). B.b.-megin,
aftan við 2ja manna klefa, er snyrting með salerni og
sturtu, stigagangar og aftast matvælageymslur (kælir
og frystir).
Ibúðir eru einangraðar með 100 mm steinull og
klætt er með plasthúðuðum rakaþéttum plötum.
Vinnuþilfar (fiskvinnslurými):
Fiskmóttaka er aftast á vinnuþilfari og er fiski hleypt
i hana um vökvaknúna fiskilúgu á efra þilfari, framan
við skutrennu. í efri brún skutrennu er vökvaknúin
skutrennuloka. Fiskmóttöku er lokað vatnsþétt að
framan með þili og á því tvær vökvaknúnar renni-
lúgur til losunar.
A vinnuþilfari er búnaður fyrir rækjuvinnslu, þ.e.
Kronbrog flokkunarvél, færibönd frá JAM, ein Póls
tölvuvog, o.þ.h. Auk þess er búnaður til ísfiskmeð-
höndlunar með þvottakari o.fl.
í skipinu eru frystitæki frá A/S Dybvad Staal Indu-
stri, þ.e. tveir láréttir 14 stöðva (1230 x 1580) plötu-
frystar af gerð DSI-H-1/14, afköst4.5 tonn af rækju á
sólarhring hvor.
Fiskilest:
Fiskilest er um 100 m3 að stærð og gerðfyrir geymslu
á ísfiski í 660 I körum, samtals 82 kör, og einnig fyrir
geymslu á frystum afurðum. Lestin er einangruð með
steinull og klædd með vatnsþéttum krossviði. Kæling
í lest er með kæliblásurum.
Aftast á lest er eitt lestarop með stálhlera á lágum
karmi, en jafnframt er smálúga á lest. Á efra þilfari,
upp af lestarlúgu á neðra þilfari, er losunarlúga (2000
x 2000 mm) með stálhlera á karmi. Fyrir affermingu á
fiski er krani.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Vindu- og losunarbúnaður er vökvaknúinn (há-
þrýstikerfi) frá Rapp Hydema A/S og er um að ræða
tvær togvindur, tvær grandaravindur, tvær hífinga-
vindur og pokalosunarvindu, en jafnframt er skipið
búið SBG Hydraulic losunarkrana. Þá er gert ráð fyrir
dragnótatromlum og kraftblökk frá Rapp Hydema.
Fiskmóttaka á virmuþilfari.
Aftantil á efra þilfari, s.b,- og b.b.-megin, eru tvær
togvindur (splittvindur) af gerð TWS 2500/43-09200,
hvor búin einni tromlu og knúin af einum vökva-
þrýstimótor.
Tæknilegar stærðir (hvor vinda):
Tromlumál 324 mmo x 1100 mm0 x
Víramagn á tromlu 1130 mm 700 faðmar af 3" vír
Togátak á miðja (712 mmp) tromlu . 7.7 tonn
Dráttarhraði á miðja (712 mmo) tromlu 88 m/mín
Vökvaþrýstimótor Hágglunds 43-09200
Afköst mótors 152 hö
Þrýstingsfall 210 kp/cm2
Olíustreymi 400 l/mín
Framarlega á efra þilfari, í göngum s.b.-og b.b.-
megin, eru tvær grandaravindur af gerð SWB 680/
HMB 5 - 9592. Hvor vinda er búin einni tromlu (254
mmp x 1000 mmp x 600 mm) og knúin af einum
Bauer HMB 5 - 9592 vökvaþrýstimótor, togátak á
tóma tromlu (272 mmo) er 7.0 tonn og tilsvarandi
dráttarhraði 50 m/mín.
Á hvalbaksþilfari, aftan við brú, eru tvær hífinga-
vindur at gerð GWB-680/HMB5-9592, hvor búin
einni tromlu (254 mmp x 600 mmp x 350 mm) og
knúin af einum Bauer HMB 5-9592 vökvaþrýsti-
mótor, togátak á tóma tromlu (272 mmp) er 7.0 tonn
og tilsvarandi dráttarhraði 50 m/mín.
Aftantil átogþilfari, b.b.-megin, erein hjálparvinda
fyrir pokalosun af gerð SNW 801 /HMB 5-9592, búin
einni tromlu (324 mmp x 500 mmp x 250 mm) og
kopp, togátak á tóma tromlu (344 mmp) er 5.5 tonn
og tilsvarandi dráttarhraði 76 m/mín.