Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Síða 53
Rcttur Jjcgna crlcndra rikja til fiskvciöa viö ísland
47
6. gr.
Með reglugerð þessari er ur gildi numin reglugerð nr.
46 22. apríl 1950, um verndun fiskimiða fyrir Norður-
landi.
7. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi 15. maí 1952.
Reglugerð þessi er hér með sett samkvæmt lögum nr.
44 5. apríl 1948, um vísindalega verndun fiskimiða land-
grunnsins, sbr. bráðabirgðalög nr. 37 19. marz 1952, um
breyting á þeim iögum.
Jafnframt hafa verið gefin út bráðabirgðalög 19. marz
1951, þar sem refsing fyrir brot á inum nýju reglum er
færð til samræmis við refsiákvæði laga nr. 5/1920, um
bann við botnvörpuveiðum, laga nr. 45/1937, um bann gegn
dragnótaveiðum í landhelgi, og laga nr. 33/1922, um rétt
til fiskveiða í landhelgi, með síðari breytingum. Ef brot
á ákvæðum reglugerðarinnar fellur ekki undir ákvæði
neinna laga þessara, þá varða þau sektum frá 1000 til
100000 krónum.
Eins og kunnugt er, fylgdi sú lína, ,,grunnlínan“, sem
landhelgin var talin frá áður, yfirleitt strandlengju lands-
ins. Hún var bogin eða brotin eftir lögun strandlengjunnar
eða hólma þeirra, skerja eða eyja, sem eigi eru fjær en 3
mílufjórðunga, að undanteknum línum þvert milli and-
nesja, þar sem fjarlægðin nam eigi meira en 10 mílufjórð-
ungum. Eftir reglugerðinni er þessu öðruvísi hagað.
,,Grunnlínan“ er sett þannig, eins og uppdrátturinn sýnir,
að flóar og firðir verða yfirleitt innan hennar. Með þeim
hætti er t. d. allt hafsvæðiö innanvert við línu dregna frá
Eldeyjardrangi til Öndverðarness innan við „grunnlín-
una“, allt svæðið innan við línu frá öndverðarnesi til Látra-
bjargs sömuleiðis o. s. frv.
Svæðið út frá „grunnlínu", 4 mílufjórðunga í haf út,