Tímarit lögfræðinga - 01.04.1953, Blaðsíða 31
Okur og skyld brot.
93
var, þá á að sjálfsögðu að miða við þá fjárhæð, sem gold-
in var. En ef minna hefur verið goldið en áskilið var,
þá. kann að vera vafamál, við hvora fjárhæðina skal miða.
Það er nóg til fullframningar brots, eins og síðar verður
vikið að, að lánveitandi áskilji sér ólöglegan vinning,
og að lántakandi gangi að tilboði hans. Samkvæmt því
ætti að miða sekt við það, sem lánveitnadi hafði áskilið
sér, en einhver málsbót kynni að felast í því, ef lánveit-
andi lætur sér nægja minna en hann áskildi sér í önd-
verðu. Ef hann verður af áskildum ávinningi af öðrum
ástæðum, mundi það víst engu skipta.
Þegar einungis er greitt í peningum og málið er að
öðru leyti full skýrt, þá er auðvelt að ákveða sektina,
því að þá má reikna saman oftekna vexti, steðja þá fjár-
hæð, sem greidd var samkvæmt ákvæðum lánssamnings
fram yfir þá fjárhæð, sem lántakandi raunverulega fékk,
o. s. frv. En þegar í öðru er greitt, t. d. í vinnu, einstak-
lega eða tegundarákveðnu verðmæti o. s. frv., þá verður
að meta það, hverju greiðslan nemi í krónutali, enda er
óheimilt að ákveða sekt öðruvísi. Loks má vera, að ekki
fáist fullar sönnur um það, hverju ólöglegur ávinningur
nemi, og skal þá ákveða sekt eftir málavöxtum. Lág-
markið verður að miða við þá fjárhæð, sem ætla má
lánveitanda hafa með vissu tekið, en sektin getur orðið
hærri, ef atvik þykja benda til þess, að hann hafi meira
tekið ólöglega en sönnur hafa verið leiddar að. Að þessu
leyti verður aðstaða dómara svipuð og annars, er ákveða
skal sektir.
Eins og sagt var, skal sökunautur greiða sekt, er nemi
5—25-földum inum óleyfilega ávinningi. Þannig löguð
ákvæði um ákvörðun sektar valda ef til vill nokkrum vafa
um nokkur atriði, vafa, sem reyndar rís hvarvetna þess, er
sektir eru lögmæltar með sama hætti. Samkvæmt 49. gr.
hegnl. er lágmark sekta, er dæma má, 4 kr., en hámark
30 000 kr., nema sérstök lagaheimild sé til þess að ákveða
sekt hærri eða lægri. Lágmarksákvæðið skiptir naumast
máli hér, með því að varla yrði nú reki gerður að máli,