Tímarit lögfræðinga - 01.04.1953, Side 36
9S
Tímarit lögfrceöinga.
okurl. Loks yrði milligöngumaður væntanlega að endur-
greiða oftekna vöxtu, svo sem hann hefði verið lánveit-
andi, ef hann skýrir ekki frá því, hver hann hafi verið.
Og sama mundi líklega vera, ef lánveitandi greiddi þá
ekki. Sýnist jafnvel sem lánveitandi og milligöngumaður
ættu að vera ábyrgir um endurgreiðslu in solidum, þar
sem þeir eru samsekir í refsiverðum verknaði.
Gera mætti sjálfsagt þann hluta okurvaxta, sem milli-
göngumaður hefur fengið, upptækan, ef enginn, sem kröfu
á til endurheimtu hans, gerir slíka kröfu.
Vitanlega hvílir sönnunarbyrðin um ávirðingar milli-
göngumanns á ákæruvaldinu í opinberu máli og um endur-
heimtu á þeim, sem endurheimtukröfu gerir, eins og sagt
var um slíka kröfu á hendur lánardrottni.
c. Almennu ákvæðin í II. kafla almennra hegningar-
laga um refsiskilyrði taka sjálfsagt til brota samkvæmt
2.—5. gr. okurlaganna. Hins vegar gilda ákvæði 18. gr.
hegnl. ekki um þessi brot. En vitanlega kemur til álita
notkun 18. gr. per analogiam. Brot þessi verða sjaldan
unnin öðruvísi en með vitund um saknæmi þeirra, og er
ásetningur þá fyrir hendi. Gáleysi gæti þó átt sér stað
hjá aðilja, sem tekur við ólöglegum ávinningi af láns-
viðskiptum, sem umboðsmaður hans hefði komið í kring,
eða sakir reikningsskekkju. Nú er refsing fyrir brot þessi
aliþung, og væri því sennilega ástæða til þess að refsa
ekki, nema ásetningur hafi verið fyrir hendi. Hins vegar
verða engar hugrænar kröfur gerðar til aðilja um endur-
heimtu ólögiegs ávinnings þeim á liendur.
Brot er fullframið, þegar lánveitandi hefur ,,áskilið“
óleyfilegan ávinning samkvæmt 2.—5. gr. okurlaganna.
Þetta má skilja á tvo vegu. Er það nægilegt til refsingar,
að væntanlegur lánveitandi orði það eða setji það láns-
skilyrði, að endurgjaldið fyrir lánstraustið sé hærra en
lögin leyfa, enda þótt lánbeiðandi gangi ekki að því? Eða
vinnur aðili sér fyrst til refsingar, er gagnaðili gengur
að þessu skilyrði? Ef fyrri spurningunni er svarað neit-
andi, þá hefur væntanlegur lánveitandi aðeins gert tilraun