Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Blaðsíða 7
Málskot til œöra stjórnvalcls.
133
athafna. Æðra stjórnvald hefur einnig oft meiri æfingu
og alhliða þekkingu en lægra sett stjórnvöld.
Þegar leysa skal úr þeirri spurningu, hvort stjórnvalds
ákvörðun megi kæra til æðra yfirvalds eða ekki, er annars
rétt að líta á það, hvers eðlis hún er. Sé um svokallaðar
íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir — boð, bönn, kvaðir,
synjanir o. s. frv. — að tefla, virðist rétt að telja þær al-
mennt kæranlegar til æðra stjórnvalds, enda sé venjulegt
stjórnsamband milli stjórnarvaldanna — þess æðra og
lægra. Hér er ástæða til að veita borgurunum þá auknu lög-
vernd, sem í kæruheimild felst. Það stjórnvald, sem að
hinni íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun stendur, getur og
oft sjálft afturkallað hana eða breytt henni til hagræðis
viðkomandi aðila. Á hinn bóginn eru svonefndar ívilnandi
stjórnvaldsákvarðanir — svo sem alis konar leyfi, löggild-
ingar o. fl. — oft bindandi fyrir útgefanda. Þá getur við-
komandi stjórnvald sjálft eigi kallað aftur né breytt
ákvörðun sinni, enda þótt ný sjónarmið og nýjar upplýs-
ingar lcomi fram. Þegar svo er, virðist stjórnvaldsákvörð-
un eigi vera kæranleg til æðra stjórnvalds, nema til þess sé
sérstök lagaheimild.
1 öðrum tilvikum krefjast almannahagsmunir þess, að
ívilnandi stjórnvaldsathafnir séu afturtækar, a. m. k. þeg-
ar aðstæður breytast eða þegar sérstakar ástæður eru fyrir
hendi. Er stundum ótvíræð heimild til slíkrar afturköll-
unar, sbr. t. d. 7. málsgr. 20. gr. bifreiðal. nr. 23/1941. 1
slíkum tilfellum virðast líkur fyrir því, að ívilnandi stjórn-
valdsákvarðanir séu kæranlegar.
Það hlýtur jafnan að vera skilyrði stjórnlegrar kæru, án
sérstakrar orðaðrar lagaheimildar, að æðra stjórnvaldið
hafi skilyrði til að geta kannað og metið ákvörðun lægra
setts stjórnvalds, t. d. nægilega þekkingu. Þar kemur þó
til greina, að oft getur það verið á færi æðra stjórnvalds,
að afla sér nægrar sérfræðilegrar aðstoðar, þótt það sjálft
skorti sérkunnáttu. Verður nokkuð að meta það eftir atvik-
um hverju sinni.
Almenna kæruheimild sýnist og verða að binda við það,