Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Page 49

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Page 49
Framkvæmd laga nr. 89/1936 175 skilorðsbundnum dómi til refsivistar. Slíkt mundi hafa betri áhrif á almenna löghlýðni og einnig á sökunaut sjálf- an, sem slyppi þá ekki að öllu leyti við refsingu, enda þótt hann stæðist skilorðið. Telja þeir, sem þessu eru fyigjandi, að heimila eigi beitingu fésekta ásamt refsivist í þessum tilfellum, enda þótt núgildandi lög heimili einungis refsi- vist. Yms fleiri atriði eru á dagskrá í þessum efnum, sem of langt yrði sér upp að telja. Breytingar á ákvæðum okkar um skilorðsbundna dóma hafa mér vitanlega ekki verið neitt að ráði ræddar og eru ekki fyrirsjáanlegar, en heppi- legt er að fylgjast með því, sem efst er á baugi í nágranna- löndunum í þessum efnum. Framkvæmd laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraöi. Framkvæmd laga nr. 85/1936 hefur að sumu leyti orðið með nokkrum erfiðleikum. Fyrstu árin eftir gildistöku lag- anna mátti það jafnvel teljast undantekning, ef héraðsdóm- arar og málflutningsmenn færu að öllu leyti eftir þeim. In gamla tilhögun sýnist hafa verið þeim svo inngróin, ef ekki hjartfólgin, að þeir áttu mjög bágt með að fella sig við eða tileinka sér fyrirmæli inna nýju laga. Skriflegur málflutningur, þar sem málflytjendur fengu frest á frest ofan til þess að karpa um staðreyndir og málsástæður, var aðaleinkenni innar gömlu málsmeðferðar. Dómari kynnti sér lítt málavöxtu eða málflutning fyrr en mál hafði veriö tekið til dóms. Þá varð dómari að lesa öll in mörku sóknar- og varnarskjöl, enda þótt reynslan væri sú, að ekkert væri nýtt í öllum þeim skjölum, nema fyrstu tveimur sóknar-

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.