Tímarit lögfræðinga - 01.01.1956, Síða 53
turn“) var tengt- við Noreg á fyrstu öldum landnáms síns,
og kom árið 1380 undir hina dönsku krónu.
Árið 1814, er Danmörk og Noregur voru aðskilin, var
Grænland áfram með Danmörku.............................
Grænland hefur aldrei verið nýlenda í hinni sígildu
(classical) merkingu þess orðs, heldur hefur alt aftur á
daga víkinganna verið talið vera norrænt yfirráðasvæði
(a Nordic dominion).“i)
Áður liefir verið sýnt fram á það, að orðin „sameinað
skandinavískt löguneyti", „a Nordic dominion" og hin yfir-
iýsta, ófullvalda nýlendustaða Grænlands geti aðeins vísað
til Islands sem hins fullvalda höfuðlands. Hér staðfestir
fulltrúi Danmerkur þetta með beinum og berum orðum, er
liann segir, að þjóðfélagslega hafi Grænland heyrt fslandi
til sem nýlenda eða dominion.
Það hefur aldrei áður heyrst, að Island hafi verið háð
Noregi á landnámsöld. Þetta er einungis „dúsa“, og ætluð
þeim góðu mönnum í Noregi, sem bæði hafa talið sjálfum
sér og öðrum trú um það, að Island og Grænland hafi fyr á
öldum verið iilutar Noregs, sem þeir nú vilja ótrauðir sam-
eina afbur Noregi. Landnám Isiands stóð heldur ekki yfir
um aldir, heldur frílega hálfa öld, frá 874 til 927—29. Þá
var Noregur ekki orðinn til sem þjóðfélag, svo ekki gat
ísland verið honum háð. Þeir iandnámsmenn Islands, sem
1) „Greenland was discovered by the Vikings more than thous-
and years ago, and shortly thereafter it was settled by Scandinav-
ian immigrants.
They íound the country uninhabited, although there were sparse
traces of former settlement...
Politically Greenland was with Iceiand, which in turn was as-
sociated with Norway during the first centuries of its settlement,
and in 1380 it came undir the Ðanish-Norwegian Crown.
In 1814 when Denmark and Norway were separeted Greenland
remained with Denmark . ..
Greenland has never been a colony in the classical sense of this
word, but as íar back as the days of the Vikings has been consider-
ed a Nordic dominion" (M/P 2903).
47