Tímarit lögfræðinga - 01.01.1956, Blaðsíða 58
stjórnarinnar, en 20 voru á móti, því 5 þingmenn stjórnar-
flokkanna snerust gegn stjórninni og greiddu atkvæði á
móti henni. Tveir sjálfstæðismenn voru fjarverandi.
IV.
Opimber yfirlýéing danska utanríkisráðuneytisins,
dags. 27. nóv. — Grænland tilheyrói íslenska
þjóðfélaginu.
Hin samúðarríka framkoma Chr. S. Oftedals í garð Dan-
merkur kann að hafa átt einhvern þátt í því, að Jyllands-
posten í Árósum birti þ. 23. nóv. 1954 harðorða árás á
danska utanríkisráðuneytið og sendinefnd Danmerkur hjá
Sþ. fyrir ósæmilega framkomu gagnvart Noregi og sögu-
fölsun Noregi í óhag.
Þessari árás svaraði danska utanríkisráðuneytið með yf-
irlýsingu dags. 27. nóv. 1954. Vill það ekki kvika frá neinni
þeirri upplýsingu, sem Danmörk hafði gefið Sþ. Sérstak-
lega gerir það ræður Lannungs að sínum eigin orðum og
bendir á það, að hann hafi sagt:
,,I þjóðfélagslegu tilliti tilheyrði Grænland Islandi (,,I
politisk Henseende hörte Grönland sammen med Isíand"),
sem hins vegar var tengt við Noreg á fyrstu öldum land-
náms síns, og árið 1380 kom það undir hina dansk-norsku
krónu.
Þegar Danmörk og Noregur skildu 1814, hélt Grænland
áfram að vera með Danmörku."1)
Og síðar bætir danska utanríkisráðuneytið við: „Af
framanskráðu ætti það að vera augljóst, að ásökunin um
sögufölsun er ástæðulaus."1)
D ,,I politisk Henseende hörte Grönland sammen med Island,
som paa sin Side var forbundet med Norge i de förste Aarhundred-
er af sin Kolonisation, og i 1380 kom det under den dansk-norske
Krone.
52