Tímarit lögfræðinga - 01.01.1958, Blaðsíða 46
N or ðurlandaf r é t tir
FRÁ DANMÖRKU.
A. Drachmann Bentson forseti hæstaréttar varð 70 ára
hinn 29. des. 1957 og lét þá af embætti sinu, en hann var
dómari i liæstarétti, siðan 1940.
Drachmann Bentson var áhugamaður um samvinnu
norrænna lögfræðinga og einn af oddamönnum Dana á
norrænu lagamannaþingunum. Margir íslenzlcir lögfræð-
ingar munu, auk góðra persónulegra kynna, einkum minn-
ast hans í sambandi við hina greinagóðu skýringaútgáfu
hans og K. Christensen á „Lov om forsikringsaftaler“.
Við forsetaembætti Drachmann Bentsons tók Otto L.
Kaarsberg. Hann er 63 ára gamall, hefur verið dómari í
Bæjarrétti Kaupmannahafnar og Eystri Landsrétti, en
hæstaréttardómari síðan 1947. Hann hefur og verið próf-
dómari við Lagadeild háskólans.
Prófessor, dr. jur. Poul Andersen varð 70 ára 12. júní
s.l. og lét af kennslu við Kaupmannahafnarháskóla í byrj-
un Iiaustmisseris. Hann varð docent 1924 og prófessor
1928.
Kennslugreinar hans voru stjórnlagafræði og stjórnar-
farsréttur. í báðum þessum greinum hefur liann skrifað
merkar hælcur, sem hafa fengið mikið lof bæði fræði-
manna og annarra starfandi lögfræðinga. Stjórnarfars-
réttur hans var um árabil notaður við kennslu hér i laga-
deildinni, eins og kunnugt er.
44
Tímarit lögfrœöinga