Tímarit lögfræðinga - 01.01.1964, Blaðsíða 46
Lögfræðingar á íslandi
1. júní 1964
Iiér á eflir er skrá um lögfræðinga, sem á lífi ern
liér á landi 1. júní 1964. Hana liefur gert Jón ögm. Þor-
móðsson stud. jur að tilhlutan undirritaðs. Hún er sam-
in til hirtingar í Handbók stúdenta, en hún á einnig er-
indi til lögfræðinga og er því birt hér með leyfi réttra
aðila.
Þegar skrá eins og þessi er samin, verður alltaf um
álitamál að ræða, hvernig flokka skidi og einnig um
það, livar í flokki skuli skipa einstökum mönnum. Skrá-
in á þó að geta gefið nokkra heildarsýn yfir það, hver
slörf lögfræðingar stunda.
Að nokkrum atriðum í skránni skal stutllega vikið.
Fyrst má þá geta þess, að lögfræðinám hér miðar
aðallega að því að undirhúa menn til starfa á sviði
dómsmála, enda nær forgangsréttur lögfræðinga til
starfa lítt út fyrir það svið. Ef nú að litið er á skrána,
sést að slíkum störfum gegna 201, þ. e. þeir, sem taldir
eru i þrem fyrstu flokkunum að undanskildum lög-
reglustjóra og tollsljóra í Reykjavík og háskólarilara.
Þeir eru ekki teknir með af því, að lögfræðipróf er ekki
skilyrði til þessara starfa.
Þá er þess að gela, að meginstörf alls þorra bæjar-
fógeta og sýslumanna verða eigi talin á sviði dóms-
mála. Aðalstörf þeirra eru á sviði framkvæmdavalds
ríkis og sveitarfélaga.
Á það ber og að líta, að ýmsir málflutningsmenn
stunda fremur kaupsýslu, t. d. fasteignasölu og eigna-
umsýslu lieldur en eiginleg lögfræðistörf og mundu
40
Tímarit liigfræðinga