Tímarit lögfræðinga - 01.01.1964, Blaðsíða 56
Starfið innan samtakanna.
öflun nijrra meðlima er nauðsynleg til þess að ná
sterkri aðstöðu í kjarabaráttu. Samtökin urðu að ná
mikilli hlutfallslegri meðlimaaukningu, ef þau áttu að
geta náð nauðsynlegum árangri. A fyrstu starfsárum
SACO var tiltölulega algengt, að menn væru meðlimir í
tveimur fagfélögum. Meðlimur i SACO gat sömuleiðis
einnig annað hvort verið meðiimur í TCO eða SR, ann-
að hvort gegnum starfsmannafélag sitt eða sem einstakl-
ingur. Það kom í Ijós, að þessi tvöfalda þátttaka var
óheppileg, já, og til lengdar ógerleg. Ekki er hægt, að
tvenn félagasamtök með ólíka stefnu hafi umhoð fyrir
sama manninn. Vandamálið var sett á oddinn 1952.
Bandalag menntaskólakennara var hæði meðlimur SR
og SACO. Eftir samningaumleitanir við rikið greip
SACO til kjaraharáttuaðgerða, en á meðan var SR að
taka ákvörðun sína. Nú urðu menntaskólakennararnir
auðvitað að kjósa annan hvorn aðilann og þeir kusu
SACO. Síðan hvarf þessi tvöfalda þátttaka smám sam-
an. í lögum SACO er miðað við, að meðlimirnir tilheyri
aðeins einu fagfélagi.
Þýðingarmikið verkefni innan samtakanna var að út-
vega fjármagn, svo að starfsemin gæti orðið virk. Gjöld-
in til einstakra aðildarfélaga voru hækkuð og fyrir auk-
ið fjármagn ráðið starfslið, þ. e. a. s. mvnduð föst skrif-
stofa fyrir daglegt starf.
Gjöld til félaga sænskra háskólamanna eru nú vfir-
leitt milli 200—300 s.kr. áári. Til SACO renna 30 s.kr.
af þessu árgjaldi.
Starfsliðið á skrifstofu SACO er nú 19 manns, þar af
10 háskólamenntaðir menn. Aðildarfélögin hafa skrif-
stofur, sem samtals hafa mörgum sinnum fleiri starfs-
menn.
Gjöldin ganga ekki eingöngu lil skrifstofanna, lield-
ur einnig m. a. til að byggja upp þá sjóði, sem nauðsyn-
50
Tímarit lötjfræðinga