Tímarit lögfræðinga - 01.06.1964, Blaðsíða 57
FRÁ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGI
ÍSLANDS 1964
Aðalfundur Lögfræðingafélags Islands var haldinn i
I. kennslustofu Háskólans þriðjudaginn 29. des. 1964.
Formaður setti fundinn kl. 17,30 og skipaði Hákon Guð-
mundsson, yfirborgardómara, fundarstjói'a.
Þetta gerðist m. a. á fundinum:
1. Formaður, próf. Ánnann Snævarr, háskólai’ektor,
gaf skýrslu um starfsemi félagsins og ræddi framtíðar-
áform.
Formaður gat séi’staklega tveggja góðra ei’lendra gesta,
sem haldið hefðu fyrirlestra á vegum félagsins. Voru það
þeir prófessorai'nir Rudolf Sieverts og Johannes Andenæs.
Dr. jur. Rudolf Sieverts, rektor Hamborgarháskóla flutti
hinn 3. okt. 1963 fyi'ii'lestur, sem hann nefndi „Afbrota-
mál í velferðai'ríkjum“. Skýrði hann m. a. frá afbrotum
ungmenna í Vestur-Þýzkalandi eftir síðari heimsstvrj-
öldina. Þótti mönnum eftirtektarvert, að reynsla Þjóð-
verja í þessu efni er sú, að afbrotum fjölgaði eftir því
sem efnahagur almennings batnaði. Fyrirlestur Dr. Sie-
verts var stói'fróðlegur og vel fluttur. Próf. Sieverts kenn-
ir m. a. refsii’étt og afbi’otafi’æði við háskólann í Ham-
borg. Hefur hann lagt sérstaklega fyrir sig afbrotavanda-
mál ungmenna og viðurlög við slíkum afhrotum. Hann
stýrir „Seminar fúr Jugendrecht und Jugendhilfe“ og
„Seminar fúr Sti'afrecht und Kriminalpolitik“ við laga-
deild Hamborgarháskóla.
Erindi dr. jur. Johs. Andenæs var haldið hinn 20. mai'z
1964. Fjallaði það unx bandarísk lög og lagaframkvæmd.
Var það einstaklega skemmtilega flutt, eins og fyrirlesar-
Timarit lögfræðina
113