Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Page 36
Frá Lögfræðingafélagi íslands
Árið 1965 var starfsemi Lögfræðingafélags íslands
með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hér verður skýrt
frá ýmsum þáttum félagsstarfseminnar á þvi ári.
Fjölgun félagsmanna.
Snemma árs liófst stjórnin lianda um að auka fé-
lagatöluna. I því skyni var sent umburðarbréf til allra
lögfræðinga, sem ekki voru i félaginu. Brugðu ýmsir vel
við og gerðust félagar strax. Tilmæli stjórnarinnar voru
siðan ítrekuð munnlega við sem flesta þá lögfræðinga,
er ekki sinntu umburðarbréfinu. Bar það sæmilegan
árangur og óx félagatalan úr 180 miðað við 1. okt. 1964
í 228 miðað við 1. okt. 1965. Söfnun nýrra félaga befur
stöðugt baldið áfram. Þegar þetta er ritað (í ágúst 1966)
eru félagsmenn um 260. Mun félagið nú vera næst
stærsta félag háskólamenntaðra manna hérlendis; en
Verkfræðingafélag íslands er fjölmennast með um 300
félaga. Samt sem áður er stjórn Lögfræðingafélagsins
ekki allskostar ánægð með hve margir löglærðir hafa
skorizt úr leik og er skorað á alla ófélagsbundna lög-
fræðinga að ganga í félagið. Sérstaklega eru nýútskrif-
aðir kandidatar bvattir til virkrar þátttöku í félags-
starfinu. Minnt skal á, að tilgangur félagsins er m. a.,
að efla samheldni með lögfræðingum og að gæta hags-
muna lögfræðingastéttarinnar í hvívetna og vera i fvr-
irsvari fvrir stéttina gagnvart innlendum aðilum og er-
lendum. Má segja, að félaginu sé einkum ætlað að gæta
tvenns konar hagsmuna, menningarlegra og fjárhags-
legra.
98
Tímarit lögfræðinga