Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 12
sem krafa var gerð um, eða þá að eklci var haldið uppi
vörnum, þannig að mál gekk til dóms án frekari gagna-
öflunar. Frekari gagnaöflun og málflutningur fór hins
vegar aðeins fram í 34758 málum. Úrslitum margra þeirra
ræður ritarinn, en það sýnir, að litlar fjárhæðir hafa verið
í liúfi og það skýrir einnig, livers vegna kviðdómar voru
aðeins kvaddir til í tveimur málum, enda þótt skjóta megi
til þeirra mörgum málum samkvæmt hókstaf laganna.
2. Sýslunarmannadómstólar (Magistrates Courts).Eins
og síðar mun koma i ljós, hafa sýslunarmannadómstól-
arnir, sem skipaðir eru ólaunuðum og ólöglærðum frið-
dómurum (Justices of peace) einkum lögsögu á sviði
sakamála. En þeir hafa einnig nokkra lögsögu á sviði
einkamála og er hún um margt sérstæð. Er sú lögsaga
einkum hundin við sifjamálefni, svo sem að kveða upp
meðlagsúrskurði og úrslcurði um forræði barna undir 16
ára aldri; þeir geta einnig veitt samþykki til njúskapar
fólks undir 21 árs aldri, ef foreldi’ar hafa synjað þess.
Kviðdómar eru ekki hafðir í þessum málum.
3. Fulltrúar til afgreiðslu hjónaskilnaðarmála (Divorce
commissioners).
Til þess að létta á þeim deilum yfirréttarins (High
Court), sem staðfesta erfðaskrár, afgreiða hjónaskilnaðar-
mál og sjóréttarmál, fara fulltrúar með afgreiðslu hjóna-
skilnaðarmála, hæði í London og um það bil 42 borgum
viðs vegar um landið. Þessir fulltrúar geta verið annað
hvort héraðsdómarar eða lögmenn, svokallaðir lögmenn
drottningar (Queens Counsel).1) Meðan þeir eru við störf
þessi, er réttarstaða þeirra hin sama og dómara við yfir-
réttinn. Arið 1963 fjölluðu þeir um 11776 mál í London
x) Þegar konungur er við völd, eru þessir lögmenn nefndir
Kings Counsel. Þeir flytja mál fyrir rikisvaldið og eru í meiri
metum en aðrir málflytjendur (barristers).
74
Tímarit lögfræðinga