Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 52
Frá Lögfræðingafélagi íslands
Starfsemi Lögfræðingafélags íslands árið 1966 hófst
með stjórnarfundi í byrjun janúar. Verkaskipting innan
félagsstjórnarinnar var þannig: Formaður Þorvaldur
Garðar Ivristjánsson, alþingismaður, varaformaður Þórður
Björnsson, yfirsakadómari, gjaldkeri Einar Bjarnason, rík-
isendurskoðandi, ritari Arnljótur Björnsson hdl., fundar-
ritari Arni Gunnlaugsson hrl., og meðstjórnendur Guð-
mundur Jónsson, horgardómari, og Theodór B. Lindal,
prófessor.
Umræðufundir.
A starfsárinu voru lialdnir fjórir almennir félagsfundir
auk aðalfundar og tókust þeir ágætlega. Á fyrsta fund-
inum, sem haldinn var í marzmánuði, var til umræðu
fundarefnið: „Barnaverndarmál og frumvarp til laga um
vernd barna og ungmenna“. Frummælendur voru þeir
prófessor Ármann Snævarr, háskólarektor, og Ólafur Jóns-
son, fulltrúi lögreglustjóra, og fluttu ýtarleg og fróðleg
erindi.
Prófessor Ármann Snævarr vék m. a. að sögu og þróun
barnaverndarmála hér á landi og víða annars staðar, og
reifaði þau nýmæli, sem frumvarp til laga um vernd
barna og unglinga, sem borið var fram á alþingi 1964,
hafði að gevma. Taldi hann einkum knýjandi í þessum
efnum að koma á breyttri framkvæmd í Ijarnaverndar-
málum með þvi að framfylgja gildandi löggjöf afdráttar-
og skilmálalaust og að auka starfslið barnaverndarstarf-
seminnar og bæta aðstöðu á sviði hennar.
Ólafur Jónsson gerði grein fvrir störfum barnaverndar-
nefnda, en hann hefur verið formaður Barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur. Lýsti hann þeim vandkvæðum, sem
þær ættu við að stríða vegna vöntunar á þeim stofnunum
og starfsliði, sem nauðsynlegt væri fvrir barnaverndina.
114
Tímarit löcjfræðinga