Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Side 34
Úrskurð um geðrannsókn má kæra til Hæstaréttar, hvort
sem gæzluvarðhaldi hefur verið beitt eða ekki, sbr. 1.
tölulið 172. gr. 1. 82/1961. Ég hef ekki fundið nema eitt
kærumál út af úrskurði um gæzluvarðhald og geðrann-
sókn. En þar var kært með stoð í 3. tölulið 172. gr„
sem miðast við gæzluvarðhaldið eingöngu, sbr. Hrd.
XXXVIII, 100. Stundum er látið nægja samþykki söku-
nautar sjálfs. Ætti það yfirleitt að vera óhætt, nema hann
sé sviptur sjálfræði.
Mér telst svo til, að Hæstiréttur hafi á umræddu tíma-
bili fengið til meðferðar 33 refsimál, þar sem geðrann-
sókn var látin fara fram við meðferð máls í héraði eða
Hæstarétti (eða fyrir báðum dómstigum). Þar undir falla
ekki lögræðissviptingarmál, þótt með þau sé farið að
hætti opinberra mála. Enn fremur eru undan skilin 3 mál,
þar sem að vísu var gerð rannsókn ó geðheilsu í sam-
bandi við sakadómsrannsókn. 1 tveimur þeirra var krafizi
bóta vegna gæzluvarðhalds og geðrannsóknar að undan-
genginni niðurfellingu máls af hálfu ákæruvalds. I einu fór
fram geðrannsókn vegna kröfu um lausn úr farbanni. I
þessum 33 málurn hafa 38 sakaðir menn sætt rannsókn,
allt karlmenn. Af þessum 38 mönnum voru 33 sakfelldir,
en hinum fimm var ekki gerð refsing. Fjórir þeirra töldust
ósakhæfir, og hlutu þrír þeirra að sæta öryggisgæzlu. Hinn
fimmti var sýknaður vegna sönnunarskorts. Refsing
hinna sakfelldu var allt frá 2 mánaða til 16 ára fang-
elsis. I einu tilfelli var dómur skilorðsbundinn (5 mánaða
fangelsi). Samanlagður refsitími þeirra var 108 ár eða
rúmlega 3 ár og 3 mán. til jafnaðar á hvern einstakan.
Meðalaldur var rúmlega 31 ár, miðað við dómsuppsögu
í héraði. Eftir aldursflokkum skiptust þeir svo:
Á aldrinum 15—25 ára: 11 sakfelldir
— 26—35 — : 14 --
— 36—45 — : 4 —
Eldri en 45 ára: 4 —
32
Tímarit lögfræðinga