Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Blaðsíða 36
um sig sjálfstæð og óháð hinni. 1 eitt skiptið var annar
rannsóknaraðilinn sálfræðingur. 1 langflestum málunum
var það yfirlæknirinn á Kleppsspitala eða annar embættis-
læknir þar, er rannsóknina annaðist. I 7 málum komu
aðrir við sögu, héraðslæknar, starfandi sérfræðingar í
lauga- og geðsjúkdómum og fleiri. Þar á meðal eru áður-
nefnd mál, þar sem tveir áttu hlut að máli. Rannsóknir
embættislæknanna eru alla jafna mjög ítarlegar og taka
alllangan tíma, frá nokkrum vikum upp í marga mánuði.
Rannsóknir annarra lækna eru yfirleitt að miklum mun
styttri, jafnvel aðeins vottorð án nokkurra skýringa. Hef-
ur það tiðkazt nokkuð undanfarið að láta fara fram
skyndiathuganir hjá praktíserandi geðlækni. Er slíkt
fvrirkomulag til bóta, enda algengt, t. d. i Noregi. Skyndi-
athugun getur vitaskuld leitt til ítarlegri rannsóknar. Þótt
aðeins einum lækni sé falin geðrannsókn, nýtur hann þó
oft aðstoðar annarra, t. d. sálfræðings, er framkvæmir
sálfræðipróf á sökunaut.
Ekki tíðkast að kalla geðlækna fyrir dóm til að stað-
festa álitsgjörðir sínar og svara spurningum lögmanpa.
Embættislæknum er óskvlt að koma fyrir dóm, sbr. 92.
gr. 1. 82/1961. Stundum a. m. k. er leitað eftir því, að aðrir
læknar komi fyrir dóm i þessu skyni, Ég hef aðeins rek-
izt á eitt hæstaréttarmál, þar sem læknar, þ. á m. geð-
læknir, komu fyrir sakadóm til skýrslugjafar um andlega
heilsuhagi sökunautar. Það var þó ekki við efnislega með-
ferð málsins, sbr. Hrd. XXX, 731.
Nokkuð er það mismunandi, hvar sökunautur dvelst,
meðan hann er í geðrannsókn. Oftast er úrskurðað i
gæzluvarðhald. Er þá ýmist, að sökunautur er vistaður á
sjúkrahúsi, venjulega Kleppsspítala, meðan á henni stend-
ur, eða þá, að læknir athugar sökunaut á gæzlustað i fang-
elsi; hér i Reykjavík í Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stig. I einum 5 hæstaréttarmálum kemur beinlínis fram, að
sökunautur dvaldist um tíma á Kleppsspítala, en það kann
að bafa verið oftar. Til er það líka, ef ekki þykir stafa
34
Tímarit lögfræðinga