Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Síða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Síða 23
1 framhaldi af þessu og með hliðsjón af tilvitnuðum dómum, einkum hinum síðari, má spyrja, hvernig færi, ef svokallaður sjómannafrá- dráttur yrði afnuminn með lögum. Sérstakur frádráttur fyrir sjó- menn á fiskiskipum mun fyrst hafa verið tekinn upp með 1. nr. 37/1957 um aukinn skattfrádrátt til handa skipverjum á fiskiskipum. Þessi frádráttur nær nú til allra sjómanna, sem lögskráðir eru á íslenzk skip, og eru um hann ákvæði í 14. gr. 1. nr. 68/1971. 1 umræðum, sem fram fóru á Alþingi um frumvarp til laganna frá 1957 kemur fram, að það sé einungis staðfesting á samkomulagi, er varð milli samninga- manna sjómanna og verkalýðsfélaganna annars vegar og ríkisstjórn- arinnar hins vegar um lausn kjara- og efnahagsmála. Má því e. t. v. segja, að þessi skattfríðindi séu til komin á svipaðan hátt og skatt- frelsi stríðsáhættuþóknunarinnar á sínum tíma. Hér er að vísu sá munur á, að í lögunum sjálfum er hvergi vísað til ákveðinna samninga eins og gert var í 1. nr. 61/1939. Ef sett væru lög nú í árslok um af- nám þessara hlunninda, kynni að vera öruggara með hliðsjón af þess- um dómi að fresta gildistöku þeirra til 1. jan. 1974. Eins og kunnugt er voru útsvör á þessu ári lögð á skv. 1. nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga, en þau tóku gildi þ. 22. marz s. 1. Samkvæmt þeim er gerð sú meginbreyting á reglum um álagningu, að útsvör eru lögð á heild- artekjur og þar með hefur að sjálfsögðu fallið niður þessi sérstaki sjómannafrádráttur hjá þeim, sem þar áttu hlut að máli. Hér liggur dæmið þó öðru vísi fyrir, þar sem grundvallarreglum um útsvars- álagningu var breytt, og það gæti vafizt fyrir útsvarsgjaldanda að sýna fram á, að hann væri í raun nokkru verr settur en áður, þrátt fyrir afnám frádráttarins. Eg hefi nú drepið á nokkur tilvik, er varða gildistöku laga, er afnema að meira eða minna leyti skattfrelsi, sem talið er byggt á samningi. Mér er ekki kunnugt um íslenzka dóma um þetta efni, yngri en þá sem ég vitnaði til. Hins vegar er í þessu sambandi fróðlegt að lesa hæstaréttardóm í Norsk Retstidende 1957 á bls. 522. Af þessum dómum verða vitanlega ekki dregnar þær ályktanir, að skattþegn mundi njóta hliðstæðrar verndar, ef afnumin eru skattfríð- indi, sem til eru komin á annan hátt. Skattfrelsi getur verið margs konar og af ýmsum rótum runnið. Fyrst má e. t. v. nefna það svið, þar sem löggjafinn á enn það sem kalla mætti ónumin skattlönd. Ef sett eru lög um nýjan skatt og gildistaka þeirra ákveðin með þeim hætti, að álagningin eigi að miðast við tekjur eða eign skattþegns á undanfarandi ári, eru sjálfsagt fáir 17

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.