Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 37

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 37
til máls Hafsteinn Hafsteinsson lögfræðingur landhelgisgæzlunnar, Benedikt Blöndal hrl., Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómari, Bjarni K. Bjarna- son, Þór Vilhjálmsson, Jónatan Þórmundsson, Már Pétursson og Hrafn Braga- son borgardómari. Að lokum var gengið frá umsögn. Er þar mælt með höfuð- atriðum frumvarpsins, þ. e. fjölgun dómara úr 5 í 6 og lögfestingu heimildar til, að um minni háttar mál sé fjallað af þremur dómendum. Lagt var til, að nokkrar breytingar yrðu gerðar á orðalagi, einkum varðandi heimild til að 3 menn skipi dóm. Á fundinum 22. janúar var loks rætt um umsögn félagsins um frumvarp til laga um málflytjendur. Dreift var fjölritaðri tillögu frá stjórn félagsins. Var hún í þremur meginköflum, og voru framsögumenn um þá Stefán Már Stef- ánsson, Þór Vilhjálmsson og Jónatan Þórmundsson. 1 umræðum um málið tóku til máls Þorsteinn Pálsson stud. jur., formaður Orators, Þorvaldur Grétar Einarsson bankalögfræðingur, Steingrímur Gautur Kristjánsson, Hafsteinn Hafsteinsson, Már Pétursson, Jón Steinar Gunnlaugsson stud. jur., Benedikt Blöndal og Hjörtur Torfason, auk framsögumanna. Skoðanir voru skiptar, en ekki þótti unnt að efna til atkvæðagreiðslu um einstök atriði. Urðu menn að lokum á það sáttir að senda tillögu stjórnarinnar sem umsögn, eftir að gerð hefði verið á henni ein breyting varðandi prófraun héraðsdómslögmanns- efna. Tekið skyldi fram í bréfi til allsherjarnefndar neðri deildar Alþingis, að líta bæri á umsögnina fyrst og fremst sem niðurstöðu stjórnar félagsins. — Frumvarpið um málflytjendur varðar mikilvæga hagsmuni lögfræðinga, og er þess ekki kostur að rekja hér einstök atriði I umsögn Lögfræðingafélagsins. Ýmis fleiri samtök lögfræðinga, fyrst og fremst Lögmannafélag Islands, hafa sent umsagnir. Frumvarpið er stjórnarfrumvarp, samið af Benedikt Sigurjóns- syni hæstaréttardómara, sem til þess var skipaður vorið 1971 af Auði Auðuns þáverandi dómsmálaráðherra. í greinargerð segir, að meginatriði frumvarps- ins séu tvö. Hið fyrra er afnám prófraunar þeirra, sem óska að verða héraðs- dómslögmenn, en í stað prófsins komi tiltekin starfsreynsla, þ. e. tvö ár á málflutningsskrifstofu eða 3 ár á dómaraskrifstofu og við önnur opinber störf, sem veita embættisgengi. Síðari breytingin, sem frumvarpið fjallar um varðar agavald og stofnun lögmannsdóms, sem að meginstefnu taki við núverandi störfum stjórnar Lögmannafélagsins á þessu sviði. Þriðji fundur Lögfræðingafélagsins á starfsárinu var haldinn í Lögbergi 29. janúar til að ræða um málefni opinberra starfsmanna. Framsögumaður var Hrafn Bragason, sem á sæti í nefnd, er nú vinnur að endurskoðun laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna, verkfallsrétt þeirra o. fl., svo sem vikið er að í fréttapistli Ragnars Aðalsteins- sonar um Bandalag háskólamanna á öðrum stað í þessu hefti. Að framsögu- ræðunni lokinni tóku til máls Jónatan Þórmundsson, Stefán Már Stefánsson, Ragnar Aðalsteinsson hrl., Bjarni K. Bjarnason og Hallvarður Einvarðsson aðalfulltrúi saksóknara ríkisins. Einkum var fjallað um, hvort fórna skuli ævi- ráðningu fyrir fullan verkfallsrétt opinberra starfsmanna og hvaða takmark- anir komi til greina á verkfallsrétti. Var ekki gerð ályktun í málinu á fundinum 29. janúar. Þegar þetta er skrifað, hefur verið boðaður fræðafundur 26. febrúar til að fjalla um þróun félagaréttar. Framsögumenn verða Páll Skúlason bókavörður og Hjörtur Torfason hrl. Þór Vilhjálmsson 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.