Tímarit lögfræðinga - 01.11.1973, Page 5
Ármann Jónsson hrl.:
UPPLÝSINGASKYLDA ÞRIÐJA MANNS
SKV. 36. GR. SKATTALAGANNA
Erindi þetta var ekki samið með það fyrir augum að þirt yrði sem
tímaritsgrein, heldur sem forspjall fyrir umræður á skattaréttar-
námskeiði Lögfræðingafélags Islands. Ber erindið merki þessa.
A. J.
I spjalli því er hér fer á eftir, verður reynt að gefa yfirlit um þær
reglur, sem gilda eða ætla má að gildi um upplýsingaskyldu þriðja
manns gagnvart skattyfirvöldum. Þessi upplýsingaskylda þriðja manns
varðar upplýsingar eða skýrslur, sem skattyfirvöld mega heimta um
atriði, sem ekki þurfa að varða skattlagningu þess, sem upplýsingamar
á að veita. Skylda skattþegns sjálfs til að veita skattyfirvöldum upp-
lýsingar um tekjur sínar, efnahag og annað, er varðar framtal hans
sjálfs, er því að mestu utan ramma þessa erindis. Reynt verður hins
vegar að leysa úr þeirri spurningu, hverjir aðrir séu skyldir að veita
upplýsingar og hverra upplýsinga megi krefjast. Einnig verður tekið
til athugunar, hvort eða að hvaða marki upplýsingaskyldir aðilar kunni
að vera skyldir til að veita skattyfirvöldum upplýsingar af sjálfsdáð-
um, ellegar hvort til þurfa að koma áskorun eða beiðni frá skattyfir-
völdum. 1 síðara tilfellinu verður að greina á milli þess, hvort og
hvenær krefjast megi upplýsinga með almennri áskorun í auglýsingu,
eða hvort áskorun eða beiðni verði einvörðungu beint að einum tiltekn-
um upplýsingagjafa.
Helztu lagaheimildir, sem nú gilda um þetta efni, eru 36. gr. laga
nr. 68/1971 um tekjuskatt og eignarskatt og 15. gr. laga nr. 10/1960
um söluskatt. Nefna mætti líka nokkur sérlög, en oft vísa slík lög til
almennra skattalaga.
Hér á eftir verður 36. gr. skattalaganna fyrst og fremst tekin til
skoðunar, en 1. og 2. mgr. hennar hljóðar svo:
„Allir framtalsskyldir aðilar, embættismenn og aðrir, er einhver
störf hafa á hendi í almenningsþarfir, stjórnendur banka og spari-
sjóða, hlutafélaga og annarra félaga og stofnana eru skyldir að láta
skattyfirvöldum í té ókeypis og í því formi, sem óskað er, allar nauð-
3