Tímarit lögfræðinga - 01.11.1973, Qupperneq 6
synlegar upplýsingar og skýrslur, er þau beiðast og unnt er að iáta
þeim í té, svo sem skýrslur um starfslaun, skuldabréf, vaxtabréf,
hlutabréf og arð, um vaxtabréf í bönkum, sparisjóðum og annað því
um líkt.
Þeir, sem hafa menn í þjónustu sinni, er taka kaup fyrir starf sitt,
eru og skyldir að skýra frá því, ókeypis og í umbeðnu formi, hvert
kaup þeir greiða hverjum manni þar með talin stjórnarlaun, ágóða-
þóknun, gjafir o. þ. h. Nú eru laun greidd fyrir milligöngu annars
manns og vinnuveitandi því eigi fær um að láta framangreindar upp-
lýsingar í té, og hvílir þá skyldan á milligöngumanni. Fjármálaráð-
herra er heimilt að ákveða, að hver móttakandi starfslauna og ann-
arra greiðslna, sem fyrirmæli þessarar málsgr. taka til, skuli sýna
greiðanda eða milligöngumanni nafnskírteini sitt, svo og að upplýs-
ingar greiðanda til skattyfirvalda um nafn, fæðingardag og nafnnúmer
hlutaðeiganda skuli vera í samræmi við það, sem stendur á nafnskír-
teini þeirra.“
Upplýsingaskyldir aðilar og efni skýrslna
Eins og fljótt má sjá, getur greinin varðað fjölmennan hóp ein-
staklinga, félaga og stofnana.
Upptalningu greinarinnar á þeim aðilum, sem upplýsingaskyldir
teljast, er hentugt til betra yfirlits að flokka niður og tilgreina jafn-
framt þær skýrslur, sem helst kemur til álita, að skattyfirvöld óski
eftir að fá. Að sjálfsögðu verður hvergi nærri um tæmandi upptaln-
ingu að ræða.
Ármann Jónsson hóf störf hjá skattstofu
Reykjavíkur 1951 og hefur starfað þar síðan
að undanteknum árunum 1965—1971, er hann
hafði málflutning að aðalstarfi. Hann varð hrl.
1966. Grein sú, sem hér birtist, er erindi, sem
flutt var á skattaréttarnámskeiði lögfræðinga í
nóvember 1972, og með birtingu þess lýkur
prentup fyririestra frá námskeiðinu. — Ármann
fjallar tiér um almennu regluna í 36. gr. laga
nr. 68/1971 og nokkur önnur atriði, sem snerta
skýrslugjöf þriðja manns til skattyfirvalda, svo
sem frumkvæðisskyldu og þýðingu þagnar-
skylduákvæða í lögum. Loks víkur hann að
skýrsluformum og að viðurlögum, ef gegn
reglunum um upplýsingaskyldu er brotið.
4