Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Síða 31
gegn almenningi fallið beint undir 248. gi\, en slíkt heyrir þó fremur
undantekningum til, sbr. Hurwitz, Speciel del, bls. 450, og Jorgen
Smith, Skatteunddragelser, bls. 187.
e) 1 skattskyldunni á hverjum tíma felst stjórnmálalegt ívaf, sem á
sinn þátt í að móta annað viðhorf gagnvart skattsvikum en öðrum
svikabrotum. Skattlagning er hagstjórnartæki, sem beitt er með mis-
munandi hætti í þágu stjórnarstefnunnar hverju sinni. Hugmyndir
skattþegns um afskipti hins opinbera af atvinnulífinu og skiptingu
þj óðarteknanna hafa áhrif á skilning hans og viðhorf gagnvart skatt-
lagningarreglum. Gagnrýni á skattastefnuna er ákaflega ríkjandi og
setur mark sitt á skattasiðgæði almennings. Algengt virðist, að menn
líti á minni háttar undandrátt sem nokkurs konar varnaraðgerð gegn
ofurvaldi hins opinbera.
f) Jafnræði aðila er almennt einkenni á réttarsambandi aðila, þar
sem fjársvikum er beitt. Tjónþoli kann að vera verr settur og láta
blekkjast vegna vankunnáttu, fáfræði eða andvaraleysis að nokkru
marki. Skattsvik einkennast fremur af ólögmætum tilburðum hins
veika gegn hinum sterkai’i, þ. e. ríkisvaldinu. Mörgum finnst því sem
slík háttsemi sé fremur saklaus í samanburði við það að beita blekk-
ingum við venjulega borgara, stundum reynslulitla. Sú hugsun er alla
jafna fjarlæg, að skattsvik leiði á endanum til tjóns fyrir samborgar-
ana. Sú vissa, að fjöldi annarra geri hið sama, slævir og réttarvit-
undina.
g) í fjárhagslegum samskiptum manna á milli mótast allar skuld-
bindingar mjög af persónulegri getu aðilanna og mati hvors þeirra um
sig á getu hins og áreiðanleika. Eins konar trúnaðarsamband kemst á.
Skyldan að svara skatti og gefa upplýsingar um skattstofna er lögð
á allan þorra landsmanna án minnsta tillits til fjárhagslegrar getu á
álagningartímanum og persónulegs heiðarleika skattgreiðenda. Auk
þess hafa skattayfirvöld ýmiss konar eftirlit með því, að réttar upp-
lýsingar séu veittar um skattstofna.
h) Viðurlög við skattalagabrotum eru langoftast í framkvæmd
ákveðin af stjórnsýsluaðilum. Meðferð auðgunarbrota er einkum hjá
dómstólum. Breyting sú, sem gerð var á dönsku hegningarlögunum,
markar engin þáttaskil, þar sem einungis er um meiri háttar brot að
ræða, en lögfesting almennra efnisákvæða um skattabrot í hegningar-
lögum mundi hins vegar valda róttækari breytingu á réttarfram-
kvæmdinni á annan hvorn veginn.
6. Virkar varnir gegn skattsvikum?
Atriði þau, sem nú voru rakin, mæla með ýmsum hætti gegn flutn-
25