Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 50
Fra
Lögfræöingafélagi
íslands
UM SÉRKJARASAMNINGINN
Eins og flestum mun kunnugt er nú lokið hinni fyrstu samningsgerð á
grundvelli hinna nýju iaga, nr. 46 frá 1973, um kjarasamning opinberra starfs-
manna. Með ákvæðum 3. gr. þeirra laga og ákvörðun fjármálaráðherra frá
25. maí 1973 var BHM og einstökum aðildarfélögum þess veittur samnings-
réttur, en eftir eldri lögum, nr. 55 frá 1962, fór BSRB með þann samningsrétt.
Samkvæmt nýjum lögum greinast kjarasamningar opinberra starfsmanna í
tvo meginþætti.
1. Aðalkjarasamning, en þar er BHM samningsaðilinn gagnvart ríkinu. í að-
alkjarasamningi skal, skv. 5. gr. laganna, kveðið á um fjölda launaflokka,
meginreglur til viðmiðunar um skipan í launaflokka, föst laun, vinnutíma, laun
fyrir yfirvinnu og orlof svo og um greiðslu ferðakostnaðar.
Tekið er fram að aðalkjarasamningur taki ekki til lífeyrisréttinda, launa í
veikindaforföllum, aukatekna eða annarra sambærilegra hlunninda.
2. Sérkjarasamning, en þar semja hin einstöku aðildarfélög BHM, þ. e. ríkis-
starfsmannadeildir þeirra, beint við ríkisvaldið.
Samkvæmt 6. gr. laganna skal í sérkjarasamningi fjallað um „skipan
starfsheita og manna í launaflokka sérákvæði um vinnutíma, ef um sérstakar
aðstæður er að ræða, fæðisaðstöðu og fæðiskostnað, svo og önnur kjara-
atriði, sem aðalkjarasamningur tekur eigi til og eigi eru lögbundin".
I þessum fyrstu samningum fór það svo, að BHM náði ekki samningum, og
gekk því deila um aðalkjarasamning til Kjaradóms, en skv. 14. gr. laganna
tekur Kjaradómur við máli að liðnum tveim mánuðum uppsagnarfrests, eða
fyrr, ef aðilar eru þá sammála um að vísa málinu tij dómsins.
Kjaradómur kvað upp dóm sinn hinn 15. febrúar s.l. Sá dómur er því nú-
gildandi aðalkjarasamningur.
Eigi skal hér fjallað um efni þess dóms, enda munu aðrir þegar hafa gert
það hér í tímaritinu. Á það skal þó minnt, að nokkur atriði dómsins reyndust
ríkisstarfsmönnum mjög óhagstæð, m. a. það atriði, að settir voru inn nýir
launaflokkar ofantil í launastiganum, þannig að í stað 5 B-flokka komu 8
flokkar á sama launabili, þannig að munur milli launaflokka minnkar efst í
stiganum. Með þessu var opnuð leið til þess að minnka hlutfallslegan launa-
mun ofantil í launastiganum.
Eftir að Kjaradómur hafði kveðið upp dóm sinn um aðalkjarasamning, tók
við gerð sérkjarasamninga. Þar eru eins og áður segir hin einstöku félög
samningsaðilar gagnvart ríkinu. Ríkisstarfsmannadeild Lögfræðingafélagsins
kaus sérstaka samninganefnd, kjaramálanefnd, til þess að fara með samn-
44