Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1974, Page 48

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1974, Page 48
Ávíð o£ dreif HAFRÉTTARRÁÐSTEFNA SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Annar þáttur Hafréttarráðstefnu S.Þ. fór fram í Caracas, Venezuela, dag- ana 20. júní — 29. ágúst 1974. Ákveðið hafði verið á Allsherjarþingi S.Þ., að engin atkvæðagreiðsla skyldi fara fram á ráðstefnunni, fyrr en allar leiðir til samkomulags hefðu verið þrautreyndar, og voru fundarsköp ráðstefnunnar miðuð við það. Við það bættist, að 150 ríkjum var boðið að senda fulltrúa á ráðstefnuna, en aðeins 90 ríki höfðu haft fulltrúa í undirbúningsnefnd hennar. Af þessu leiddi að störfin urðu seinunnin, þótt stöðug fundahöld stæðu yfir allan tímann. Störfin beindust að því að taka til þar sem árangri undirbúningsnefndar- innar lauk. Fyrir lágu margvíslegar tillögur, og var unnið að samræmingu þeirra og fækkun til þess að undirbúa málin sem best fyrir atkvæðagreiðsiu, ef samkomulag næðist ekki, og varð talsvert ágengt í því efni. Er nú svo komið, að tiltöluiega fáir valkostir liggja fyrir í aðalnefndunum þrem, þ. e. Fyrstu nefnd, er fjallar um hið alþjóðlega hafsbotnssvæði, Þriðju nefnd, sem fæst við mál varðandi visindalegar rannsóknir og mengun sjávar og í Annarri nefnd, sem fjallar um öll önnur mál, þ. á m. víðáttu lögsögu strandríkisins og verndun fiskistofna á úthafinu. í ræðu formanns íslensku sendinefndarinnar á allsherjarfundi ráðstefnunn- ar hinn 8. júlí 1974 var lýst afstöðu hennar til þeirrar heildarlausnar, sem stefna bæri að. Segir þar meðal annars: ,,Hið eina sem nú kemur að gagni er að reyna að gera sér grein fyrir eðliiegri heildarlausn í Ijósi staðreynda sem nú verður að horfast í augu við. Á þeim grundvelli er sendinefnd isiands sannfærð um, að aðalatriði heildarlausnar hljóti að byggjast á eftirtöldum atriðum, sem vissulega virðast nú hafa stuðning flestra sendinefnda á þessari ráðstefnu. 1. Hina eiginlegu landhelgi ber að miða við þröng mörk vegna sigl- ingafrelsis, viðskipta og samgangna á sjó. Líklegt er, að þau mörk verði miðuð við 12 mílur frá grunnlínum. I því sambandi verður að íryggja umferð um sund, sem þýðingu hafa fyrir alþjóðlegar siglingar, og finna verður lausn á vandamálum eyjaklasalanda. 2. Ef hin eiginlega landhelgi er miðuð við 12 mílur, verður efnahags- leg lögsaga yfir auðlindum landgrunns og sjávarsvæða allt að 200 mílum frá grunnlínum einnig að vera liður í heildarlausn. Áður fyrr voru þröng landhelgi eða þröng fiskveiðimörk notuð til að tryggja rétt annarra þjóða til fiskveiða á úthafinu sem næst ströndum, enda þótt réttur strandríkja til 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.