Tímarit lögfræðinga - 01.12.1974, Page 30
stéttarinnar og sérstaklega íslensku lögfræðingafélaganna. Heitir stjórn þings-
ins á lögfræðingastéttina að bregðast vel við óskum um liðsinni. Er það von
hennar, að sem flestir íslenskir lögfræðingar taki þátt í þinginu og verði þar
virkir. Sæmd íslenskrar lögfræðingastéttar liggur við, að vel takist til um þetta
þing.
I stjórn íslandsdeildar norrænu lögfræðingaþinganna eru þessir menn:
Ármann Snævarr, hæstaréttardómari, formaður, Auður Þorbergsdóttir, borg-
ardómari, Benedikt Blöndal, hæstaréttariögmaður, Björn Sveinbjörnsson,
hæstaréttardómari, Guðmundur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður, Hrafn
Bragason, borgardómari, Jóhann Hafstein, fyrrv. forsætisráðherra, Ólafur Jó-
hannesson, dómsmálaráðherra og Þór Vilhjálmsson, prófessor. i framkvæmda-
nefnd eru auk formanns þeir Benedikt Blöndal, Guðmundur Ingvi Sigurðsson
og Hrafn Bragason. Framkvæmdastjóri þingsins er Birgir Guðjónsson, cand.
jur., fulltrúi í Samgönguráðuneytinu. Eru menn beðnir að snúa sér til hans
með fyrirspurnir út af þinginu eða til einhvers stjórnarmanna.
islenskir lögfræðingar skulu segja til um þátttöku sína í lögfræðingaþinginu
eigi síðar en 1. maí n. k., og verða notuð sérstök eyðublöð undir þátttöku-
tilkynningar.
Ég lýk þessum línum með því að heita á íslenska lögfræðingastétt að taka
virkan og mikinn þátt í lögfræðingaþinginu og stuðla að því, að það verði
landi og lögfræðingastétt til sóma. t
Armann Snævarr
UM FANGELSISMÁL
Vorið 1973 samþykkti Alþingi ný lög um fangelsi og vinnuhæli, nr. 38/1973.
Lögin eru að meginstofni til lög um ríkisfangelsi og vinnuhæli nr. 18/1963 og
lög um héraðsfangelsi nr. 21/1961, sameinuð í ein lög, en ýmsu breytt og
öðru bætt við.
Samkvæmt nýju lögunum eru nú rekin hér á landi 4 fangelsi: Hegningar-
húsið að Skólavörðustíg 9, Fangelsið Síðumúla 28, bæði í Reykjavík, Vinnu-
hælið að Litla-Hrauni við Eyrarbakka og Vinnuhælið að Kvíabryggju á Snæ-
fellsnesi. ! þessum fangelsum og vinnuhælum er rými fyrir 96 karla og 7 konur.
Framantaldar stofnanir hafa allar starfað um árabil nema Fangelsið Síðu-
múla 28, sem tekið var í notkun f september 1973 í húsakynnum þeim, er lög-
reglan í Reykjavík notaði fyrir geymslu handtekinna manna, áður en lögreglu-
stöðvarbyggingin við Hverfisgötu var tekin í notkun. i fangelsinu eru alls 18
eins manns klefar, og þar af eru 7 klefar á aðskildum gangi, sem sérstaklega
eru ætlaðir til vistunar kvenfanga. Fangelsið er arinars eins og Hegningarhúsið
fyrst og fremst ætlað fyrir gæsluvarðhaldsfanga svo og varðhaldsfanga.
Forstöðumaður er Gunnar Guðmundsson, sem áður var varðstjóri í Hegn-
ingarhúsinu og varðstjóri er Gunnar Marinósson, sem einnig starfaði áður í
Hegningarhúsinu. Auk þeirra starfa þar 8 fangaverðir, þar af 2 konur.
Þegar ákveðið var að taka húsnæðið í Síðumúla 28 í notkun, sem bráða-
birgðalausn vegna skorts á húsnæði fyrir gæsluvarðhaldsfanga og varð-
204