Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Qupperneq 59
Meðal nýmæla, sem fram komu á þinginu, má nefna, að samþykkt var að
koma á fót löggjafarnefnd Dómarafélags íslands til þess að undirbúa tillögur
félagsins um löggjafarmálefni. Er verkefni nefndarinnar annars vegar að semja
umsagnir um frumvörp, en venja er að nefndir Alþingis sendi D.l. til um-
sagnar frumvörp um réttarfarsmálefni o. fl., og hinsvegar að undirbúa sjálf-
stætt tillögur um lagabreytingar og nýmæli. 1 hina nýju réttarfarsnefnd D.í.
voru kjörnir þeir: Unnsteinn Beck borgarfógeti, Steingrímur Gautur Kristjáns-
son héraðsdómari, Haraldur Henrysson sakadómari, Ásgeir Pétursson sýslu-
maður, og Magnús Thoroddsen borgardómari.
í lok dómaraþings var stjórn Dómarafélags íslands fyrir næsta starfsár
kjörin. Hana skipa:
Unnsteinn Beck, formaður, Steingrímur Gautur Kristjánsson, ritari, Böðvar
Bragason, gjaldkeri, og Björn Hermannsson og Magnús Thoroddsen með-
Stiórnendur' Már Pétursson
FRÁ AÐALFUNDI DÓMARAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Aðalfundur Dómarafélags Reykjavikur var haldinn hinn 13. nóvember s.l.
í skýrslu fráfarandi formanns, Björns Þ. Guðmundssonar borgardómara, kom
m. a. eftirfarandi fram:
Níu bókaðir stjórnarfundir voru haldnir á starfsárinu og einn almennur
félagsfundur. Stjórnin sendi frá sér um 30 bréf og erindi. Ennfremur átti
stjórnin fullskipuð viðræðufundi bæði með dómsmálaráðherra og fjármála-
ráðherra í því skyni að þoka áfram tveimur helstu baráttuverkefnum félags-
ins: Úrbótum í réttarfarslöggjöf og úrbótum í kjaramálum dómara. Raunar
má segja að mestallt starf stjórnarinnar hafi lotið að því að vinna að fram-
gangi þessara tveggja meginverkefna.
Ekki þykir ástæða til að rekja í þessum fréttapistli gang kjaramálanna, en
á hinn bóginn þykir upplýsandi að skýra frá þeim helstu erindum er stjórnin
bar upp á fundi sínum með dómsmálaráðherra í febrúar s.l., en þar var m. a.
fjallað um eftirtaldar tillögur félagsins:
1. Skipun fulltrúa í réttarfarsnefnd. Bent var á að enginn nefndarmanna
er héraðsdómari í Dómarafélagi Reykjavíkur.
2. Dómnefndir fjalli um hæfi umsækjenda um dómarastöður.
3. Tilfærslukerfi verði komið á innan dómgæslunnar.
4. Fastara formi og að nokkru leyti nýskipan verði komið á endurmennt-
unarmál dómara og leyfi í því skyni.
5. Bygging dómhúss í Reykjavík, sbr. m. a. tillögu Hákonar Guðmunds-
sonar fyrrum yfirborgardómara og Þórðar Björnssonar núverandi ríkis-
saksóknara frá 1963.
6. Lagfæringa var óskað á frumvarpi um notkun segulbanda í þinghöldum
og þess farið á leit að afgreiðslu þess yrði hraðað.
7. Hraðað yrði undirbúningi löggjafar um breytta dómstólaskipan er miði
að fullum aðskilnaði framkvæmdavalds og dómsvalds.
Auk þessa bar stjórnin upp tillögur um ýmsar breytingar á réttarfarsreglum
án umbyltingar á sjálfu réttarkerfinu, svo sem að dómurum yrði að lögum
gefið aukið vald til ákvarðana án þess að kveða sífellt upp skriflega úrskurði,
197