Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Blaðsíða 12
RENÉ CASSIN
Þann 20. febrúar s.l. andaðist í París franski
prófessorinn René Cassin, Nobels-verðlaunahafi
og um langt skeið heimskunnur lögfræðingur
og baráttumaður friðar og mannréttinda í heim-
inum.
René Cassin var fæddur í Bayonne (Basses-
Pyrénnées) þann 5. október 1888, kaupmanns-
sonur af gyðingaættum. Hann las lög við Há-
skólann í París og fleiri franska háskóla og lauk
lögfræðiprófi árið 1908. Árið 1914 varð hann
doktor í lögum, hagfræði og stjórnmálum og
1919 prófessor við lagadeild Háskólans í Lille
og árið eftir við Háskólann í París. René Cassin
tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni og særðist lífs-
hættulega af sprengjubroti. Á árunum 1924—
1936 var hann fulltrúi Frakka hjá gamla Þjóða-
bandalaginu. Eftir fall Frakklands í síðari heimsstyrjöldinni tókst honum að
flýja land sitt og settist að í London. Gekk hann þegar í lið með frelsishreyf-
ingu frjálsra Frakka undir stjórn De Gaulles og þegar De Gaulle myndaði út-
lagastjórn sína í London, varð René Cassin menntamála- og dómsmálaráð-
herra. Var hann jafnframt lögfræðilegur ráðunautur De Gaulles, ekki síst í
sambandi við hina erfiðu samninga við brezku ríkisstjórnina um lagalega stöðu
útlagastjórnar De Gaulles gagnvart Bretlandi.
René Cassin átti og mikinn þátt í stofnun UNESCO, og á árunum 1946—
1958 var hann fulltrúi Frakka hjá Sameinuðu þjóðunum. Þá var hann og skip-
aður varaformaður Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, en hlutverk
þeirrar nefndar var að semja uppkast að mannréttindayfirlýsingu. Tók það,
sem kunnugt er, nefndina hálft þriðja ár að ganga frá uppkasti sínu, og var
yfirlýsingin ekki samþykkt fyrr en á allsherjarþinginu í París 10. desember
1948. Inngangsorð þessarar yfirlýsingar eru á þessa leið: „Það ber að við-
urkenna, að hver maður sé jafnborinn til virðingar og réttinda, er eigi verði
af honum tekin, og sé þetta undirstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum."
Þá segir og í yfirlýsingunni að „hafi mannréttindi verið fyrir borð borin og
lítilsvirt, hafi slíkt haft í för með sér siðlausar athafnir, er ofboðið hafi sam-
visku mannkynsins, enda hafi þvf verið yfirlýst, að æðsta markmið almenn-
ings um heim allan sé að skapa veröld, þar sem menn fái notið málfrelsis,
trúfrelsis og óttaleysis um einkalíf sitt og afkomu." Sú hugsun, er á bak við
þessar yfirlýsingar liggur, er mjög í samræmi við skoðanir René Cassins á
grundvallarskilyrðum fyrir því, að friður megi haldast í heiminum, enda lýsti
formaður nefndarinnar, frú Eleanor Roosevelt, því yfir síðar opinberlega, að
René Cassin hefði verið aðalhöfundur þessarar Mannréttindayfirlýsingar Sam-
einuðu þjóðanna. Segja má, að samþykkt þessarar yfirlýsingar hafi verið
6